Magn og útbreiðsla áþekk fyrri árum Svavar Hávarðsson skrifar 24. maí 2016 07:00 Makrílleiðangur verður farinn í júlí. vísir/gva
Magn og útbreiðsla norsk-íslenskrar síldar innan íslensku landhelginnar austur af landinu er svipuð og undanfarin ár. Á svæðinu sunnan Jan Mayen mælist hins vegar öllu meira af síld en síðustu ár, og var þar í bland ókynþroska síld sem er óvenjulegt svona snemma árs. Kolmunni mælist í köntunum sunnan Íslands í svipuðu magni og síðustu ár. Þetta eru frumniðurstöður þriggja vikna leiðangurs rannsóknaskips Hafrannsóknastofnunar, Árna Friðrikssonar, sem hafði það meginmarkmið að meta magn og útbreiðslu norsk-íslenskrar síldar og kolmunna suður, austur og norður af Íslandi. Þessi árlegi leiðangur í norðaustanvert Atlantshaf í maí hefur verið farinn síðan 1995 og tóku þátt í honum auk Árna Friðrikssonar rannsóknaskip frá Noregi, Færeyjum, Danmörku og Rússlandi. Niðurstöður leiðangursins eru meðal annars nýttar við stofnmat Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) á norsk-íslenskri síld og til að fylgjast með langtímabreytingum á vistfræði hafsins. Sameiginleg úrvinnsla á leiðangursgögnum skipanna fimm mun fara fram á næstu vikum og verða niðurstöður kynntar og notaðar á fundi ICES í ágúst við mat á stofnstærð og til þess að veita ráðgjöf um veiði. Ekkert varð vart við makríl í leiðangri Árna Friðrikssonar í ár en á undanförnum árum hafa yfirleitt fengist fáeinir fiskar í einstaka togum milli Íslands og Færeyja. Þessar niðurstöður gefa því ekki tilefni til að álykta eitthvað um makrílgengd inn á íslensk hafsvæði á komandi sumri. Í júlí verður farið í leiðangur til makrílrannsókna. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 24. maí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira