Sautján þúsund íbúar í sameinuðu Árnesþingi Garðar Örn Úlfarsson skrifar 14. maí 2016 07:00 "Við munum veita betri þjónustu fyrir það fjármagn sem við erum með,“ segir Gunnar Þorgeirsson, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps, um kosti sameiningar í Árnessýslu. vísir/magnús hlynur „
Sjálfur held ég að sóknarfærin séu miklu meiri en það sem við töpum á því,“ segir Gunnar Þorgeirsson, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps, sem óskar nú eftir því að öll sveitarfélög í Árnessýslu tilnefni fyrir haustið tvo fulltrúa hvert til að skoða kosti og galla þess að sameina Árnessýslu í eitt sveitarfélag. „Jarðvegurinn var mjög jákvæður,“ segir Gunnar um viðtökur sem hann fékk er hann reifaði sameiningarhugmyndina á fundi héraðsnefndar Árnesinga í lok apríl. Sveitarfélögin hafi með sér mikinn samrekstur í verkefnum á borð við Tónlistarskóla Árnesinga, Brunavarnir í Árnessýslum og byggðasafn. „Eftir því sem við höfum viðrað þetta meira, bæði formlega og óformlega, þá tel ég nú skynsamlegt að Árnessýsla ætti að skoða hver væri í raun og veru kosturinn við að sameina öll sveitarfélögin í eitt sveitarfélag,“ segir Gunnar. Íbúar sameinaða sveitarfélagsins yrðu um sautján þúsund. Sameinuð Árnessýsla yrði fimmta fjölmennasta sveitarfélag landsins á undan Reykjanesbæ þar sem búa ríflega 15.200 manns og á eftir Akureyri með um 18.300 íbúa. „Þetta yrði eitt af öflugustu sveitarfélögum landsins,“ segir Gunnar. Um kosti sameiningar nefnir Gunnar að fækka myndi öllum hliðarsamningum og draga úr byggðasamlagsrekstri. „Það er svo sem ágætt til síns brúks en það verður ekki mikil framþróun í þessu og það er mikið af einyrkjastörfum í svona byggðasamlagskerfi,“ segir hann. Þá bendir Gunnar á að í sveitarfélagi af slíkri stærðargráðu yrði horft allt öðru vísi á markaðssetningu á sveitarfélaginu. „Við erum náttúrlega með allflestar náttúruperlur Suðurlands í boði fyrir ferðamennina og samþætt ferðamálastefna fyrir svæðið í heild sinni væri mjög skynsamleg,“ segir Gunnar. Hann er formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og kveður einmitt hafa verið rætt um sameiginlega ferðamálastefnu á þeim vettvangi. Gunnar rifjar upp að lengi hafi verið rætt um að sameina uppsveitir Árnessýslu. „En miðað við þau verkefni sem við erum komin með í dag þykir það orðin hálfgerð millilending. Þá velta menn því fyrir sér hvort það sé ekki skynsamlegt að skoða þann kost að fara bara alla leið,“ segir hann. Aðspurður kveðst Gunnar ekki eiga von á öðru en að öll sveitarfélögin tilnefni fulltrúa. „Auðvitað getur niðurstaðan verið sú að þetta sé ekki skynsamlegt en það er þá bara niðurstaðan. En nafnið er til; sveitarfélagið myndi væntanlega heita Árnesþing og þjóðsöngurinn er til og heitir Árnesþing. Þannig að þetta er ekki mjög flókið og svo er bara smotterí eftir,“ segir oddvitinn og hlær. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 14. maí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Innlent Fleiri fréttir Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar Sjá meira