Krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð forsetans sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 18. maí 2016 23:07 vísir/epa
Þúsundir komu saman víða í Venesúela í dag til þess að krefjast þess að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um framtíð Nicolas Maduro, forseta landsins, í embætti. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í landinu og stendur það yfir í tvo mánuði. Mótmælin hafa nú staðið yfir í þrjá daga en um er að ræða ein stærstu mótmæli í sögu landsins. Öryggissveitir og lögregla beittu táragasi á mótmælendur í dag sem svöruðu fyrir sig með grjótkasti. Neðanjarðarlestarkerfið liggur að mestu niðri en stjórnvöld segja það þó vegna tæknilegra ástæðna. Því eru stjórnarandstæðingar þó ekki sammála og segja það eina leið yfirvalda til þess að reyna að koma í veg fyrir að fólk geti komið saman og mótmælt. Maduro setti í síðustu viku neyðarlög sem eiga að veita hernum og lögreglu aukin völd. Þingið hefur hafnað lögunum, segja að um sé að ræða einræðistilburði, og segja að herinn þurfi að velja á milli þess hvort hann vilji virða stjórnarskrá landsins eða fara að fyrirmælum forsetans. Tæplega tvær milljónir manna hafa skrifað undir áskorun þess efnis að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíð forsetans en samkvæmt stjórnarskrá landsins þurfa að minnsta kosti 20 prósent atkvæðisbærra manna að skrifa undir svo hægt verði að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu, eða um fjórar milljónir íbúa. Alvarlegt ástand ríkir í Venesúela og er efnahagur landsins í molum. Óðaverðbólga ríkir, skortur er á mat og lyfjum og rafmagn takmarkað. Stjórnarandstæðingar kenna Maduro um ástandið sem ríkir og krefjast þess að hann fari frá. Hann segist hins vegar ætla að sitja áfram.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira