Mikilvægt að ungt fólk taki þátt í baráttunni Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 1. maí 2016 12:02 Vísir/Pjetur
Dregið hefur úr stéttarvitund ungs fólks að mati formanns Verkalýðsfélags Akranes sem segir mikilvægt að breyta því. Hann segir vinnu við að bæta kjör launafólks aldrei ljúka og mikilvægt að fólk um allt land fjölmenni á baráttufundi í dag. Nokkur verkalýðsfélög standa að hátíðardagkrá á Akranesi í dag. Göngu sem farin verður endar við sal Verkalýðsfélags Akraness þar sem baráttufundur verður haldinn. Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akranes er fundarstjóri. „Það eru mörg verkefni fram undan við að bæta kjör íslensks verkafólks og launafólks. Það liggur alveg fyrir að vinnu við að bæta kjör launafólks lýkur aldrei. Þess vegna er mikilvægt að launafólk vítt og breitt um landið sýni samstöðu og mæti á þessa baráttufundi því við megum aldrei láta deigan síga, ef þannig má að orði komast.“ Vilhjálmur segir að dregið hafi úr stéttarvitund ungs fólks og mikilvægt sé að breyta því. „Ég upplifi það þannig að ungt fólk þarf að kynna sér þessi mál betur taka þátt í baráttunni. Ég veit að verkalýðshreyfingin vítt og breitt um landið er að vinna í því að höfða meira til ungs fólks og láta þau taka þátt í þessari baráttu með okkur. Það skiptir höfuðmáli, þetta er jú lífsviðurværi fólksins sem að hér er undir þegar verið er að ræða kaup og kjör.“ Erfitt sé að segja til um hvað skýri áhugaleysi ungs fólks á kjarabaráttu. „Ég held að skýringin geti verið í breyttu upplýsingaflæði með samskiptamiðlum og annað slíkt. Hér á árum áður var meiri þátttaka. Þetta er kannski líka okkur, sem stjórna verkalýðshreyfingunni, að einhverju leyti að kenna. Við þurfum að skoða alla möguleika á hvernig við getum aukið hlutdeild ungs fólks í stéttarfélags baráttunni á Íslandi og þurfum að skoða allar leiðir hvað það varðar,“ sagði Vilhjálmur Birgisson.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Sjá meira