Breytingar á siðareglum ráðherra samþykktar Birgir Örn Steinarsson skrifar 3. maí 2016 16:18 Ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar setti sér nýjar siðareglur í morgun. Vísir/Anton Brink
Í morgun samþykkti ríkisstjórnin nýja útgáfu af siðareglum ráðherra í samræmi við lög um Stjórnarráð Íslands.Síðast voru siðareglur settar árið 2011 og eru nýju reglurnar unnar upp úr þeim með ákveðnum breytingum, sérstaklega hvað varðar hagsmunaárekstra. Stærstu breytingarnar eru á þeim hluta sem voru fyrsti og annar liður 2.greinar siðareglnanna frá 2011. Fjarlægður hefur verið sá hluti sem stóð að „ráðherra leggi sig fram við að tryggja að faglega sé staðið að skipun embættismanna“. Efnislega er fyrsti liður 2.greinar svipaður og árið 2011 en orðalagi hefur verið breytt. Í siðareglum 2011 stóð; „Ráðherra forðast hagsmunaárekstra og gætir þess að persónuleg tengsl hafi ekki áhrif á störf sín.“ Í siðareglunum sem samþykktar voru í morgun stendur; „Ráðherra forðast árekstra milli almannahagsmuna annars vegar og fjárhagslegra eða persónulegra hagsmuna sinna eða fjölskyldu sinnar hins vegar og gætir þess að persónuleg tengsl hafi ekki áhrif á störf sín. Takist honum ekki að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra af þessu tagi skal hann upplýsa um þá.“ Samkvæmt nýju siðareglunum getur forsætisráðherra í samráði við ríkisstjórn nú ákveðið að kalla með skipulögðum hætti eftir frekari upplýsingum um hagsmunatengsl ráðherra sem birtar verði almenningi. Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra fagnaði því að ráðherrum hefðu nú verið settar siðareglur með formlegum hætti að loknu fundi ríkisstjórnar í morgun. Hann segir að breytingarnar hafi verið nauðsynlegar í ljósi lagabreytinga og að ekki hafi þótt ástæða til þess að endurskoða siðareglurnar frá 2011 frá grunni.Siðareglur ráðherra sem samþykktar voru í morgun má lesa í heild sinni í skjali sem fylgir fréttinni.
Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Fleiri fréttir Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Sjá meira