Vilja kæra höfundarréttarbrot í skólum Snærós Sindradóttir skrifar 4. maí 2016 07:00 Miklu magni af ítarefni er dreift á meðal nemenda háskólans. Sé það frá erlendum höfundum liggja engir samningar fyrir um greiðslur vegna þess og því er það til dreifingar ólöglega. Visir/Pjetur
Erlend höfundarréttarsamtök undirbúa aðgerðir gegn skólum og stjórnvöldum hér vegna skorts á samningi um afritun og dreifingu höfundarréttarvarins efnis. Samningur við íslensku höfundarréttarsamtökin Fjölís er sagður úreltur. Því fái íslenskir höfundar aðeins brot af greiðslum fyrir afritun skólanna. „Staðan er sú að erlendir höfundar fá ekki neitt og okkur gengur mjög hægt að endurnýja þessa samninga. Íslenskir höfundar fá greitt samkvæmt forsendum sem menn gáfu sér 2008,“ segir Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri Fjölís. Samtökin hafa sent ítrekunarbréf vegna þessa til menntamála- og fjármálaráðuneytisins. Bandarísku höfundarréttarsamtökin Copyright Clearance Center og bresku samtökin Copyright Licensing Agency hafa hingað til frestað aðgerðum að beiðni Fjölís á meðn nýr samningur væri í burðarliðnum. En nú hafa samtökin óskað eftir því að Fjölís leiðbeini þeim í gegnum íslenskt lagaumhverfi þannig að erlendir höfundar fái greitt lögum samkvæmt. Helga segir samninga hafa dregist úr hófi og ný ljón virðist sífellt í veginum. „Við höfum óskað eftir því að menn gangi í það hratt og örugglega að túlka ný lög um opinber fjármál sem mér skilst að séu aðalþröskuldurinn núna.“ Kannað var árið 2014 hversu miklu höfundarréttarvörðu efni væri dreift til háskólanema. Helga segir að í ljós hafi komið margföld notkun og allt erlent efni afritað ólöglega. „Samkvæmt höfundarréttarlögum á að greiða höfundarréttargreiðslur af því efni sem er afritað.“Þessi frétt birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 4.maí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Fleiri fréttir Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Sjá meira