Úrgangur 22% minni en 2006 Svavar Hávarðsson skrifar 4. maí 2016 07:00 Uppsveifla í efnahagslífinu kemur ekki fram í meira magni úrgangs í Reykjavík. Visir/Stefán
Eygerður Margrétardóttir Heildarmagn af úrgangi frá heimilum í Reykjavík hefur dregist saman um 22 prósent á tíu árum. Árið 2006 bárust 233 kíló af úrgangi frá hverjum íbúa en var í fyrra kominn niður í 181 kíló. Þar sem tæplega þrjátíu kíló af því magni voru endurvinnsluefni þá liggur fyrir að magn blandaðs úrgangs hefur dregist saman um 35 prósent á tímabilinu. Eygerður Margrétardóttir, deildarstjóri umhverfis- og úrgangsstjórnunar hjá Reykjavíkurborg, segir árangurinn góðan að sínu mati, þó alltaf megi gera betur í málaflokknum. Í því sambandi nefnir hún að í október hafi verið samþykkt aðgerðaáætlun til 2020 um meðhöndlun úrgangs og þar eigi bæði að lágmarka myndun úrgangs en einnig að sá úrgangur sem fellur til fari í sem bestan farveg. Græn tunna undir plast sé hluti af þeirri áætlun en magntölur sýni að þeirri lausn hafi verið mjög vel tekið af borgarbúum. Tölur um endurvinnslu styðja þetta, en um 33 tonn af plasti bárust frá heimilum í Reykjavík fyrstu fjóra mánuði ársins en í dag eru ríflega 2.000 bláar tunnur við heimili. Plastmagnið fór úr 4,5 tonnum í janúar í 11,6 tonn í mars sem er 61% aukning. Eygerður bendir á að magn blandaðs úrgangs frá heimilum er sambærilegt milli ára, fór úr 149 kílóum á íbúa árið 2014 í 151 kíló í fyrra. Aukning er í pappírstunnunni á milli ára, fór úr 27 kíló á íbúa árið 2014 í 29 kíló á íbúa 2015. „Það ánægjulega er að sá hluti sem er flokkaður verður sífellt stærri,“ segir Eygerður en bætir við að það veki athygli að bætt efnahagsástand virðist ekki auka magn úrgangs frá heimilum eins og vænta mætti og rannsóknir sýni að sé algengt. Spurð um fækkun sorphirðudaga í Reykjavík, sem olli óánægju hjá mörgum, og hvort sú aðgerð verði endurskoðuð, segir Eygerður að forsendur þeirrar aðgerðar hafi verið að bjóða frekari flokkun við heimili, eins og með plastið. Sú aðgerð hafi minnkað blandaðan úrgang sem komi á móti. Önnur vísbending um að rétt hafi verið að fækka sorphirðudögum, líkt og mörg nágrannasveitarfélög hafi gert, sé að margir nýti sé spartunnu, sem er helmingi minni en hefðbundin grá tunna fyrir blandaðan úrgang. Þó hafi vissulega einhverjir þurft að fjölga tunnum, þó ekki sé mikið um slíkt. Hins vegar taki fólk frekar þá ákvörðun að flokka meira en að fjölga tunnum fyrir blandaðan úrgang, segir Eygerður en þá séu ekki þeir fjölmörgu taldir sem nýta þjónustu grenndar- og endurvinnslustöðva í borginni til að losa sig við endurvinnsluefni.Þessi frétt birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 4.maí
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Fleiri fréttir Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Sjá meira