Yngstu kjósendur vilja Árna Pál eða Helga en þeir eldri Oddnýju Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. maí 2016 10:44 Oddný Harðardóttir, Árni Páll Árnason og Helgi Hjörvar. Vísir
Flestir landsmenn telja Oddnýju Harðardóttur best til þess fallna að leiða Samfylkinguna, eða 35 prósent. Á hæla Oddnýjar kemur Helgi Hjörvar með 26,3% stuðning og svo Árni Páll Árnason með 22% stuðning. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Gallup framkvæmdi dagana 14.-20. apríl síðastliðinn en um handahófsvalið úrtak var að ræða. Magnús Orri Schram fékk 13,7% atkvæða og Guðmundur Ari Sigurjónsson 3,1%.Athygli vekur hve atkvæðin dreifa sig ólíkt eftir aldri kjósenda. Þannig nýtur Árni Páll langmests stuðnings í hópi 18-24 ára eða 56% fylgis en á sama tíma vilja 54% í hópnum 65 ára og eldri Oddnýju í formanninn. Helgi Hjörvar nýtur mest stuðnings í hópnum 25-34 ára eða 44%. Atkvæðin dreifa sér jafnar í öðrum aldurshópum. Árni Páll tilkynnti um framboð sitt til formanns á ný í síðustu viku. Helgi Hjörvar tilkynnti um framboð sitt í febrúar, Oddný og Magnús Orri í mars og Guðmundur Ari sömuleiðis. Landsfundur Samfylkingarinnar fer fram 4. júní.Niðurstöður könnunarinnar eftir aldri, búsetu og menntun má sjá hér að neðan. Marktækur munur var eftir aldri og búsetu en ekki menntun. 1432 manns 18 ára og eldri á öllu landinu tóku þátt í könnuninni og voru handahófsvalin úr viðhorfahópi Gallup. Þátttökuhlutfall var 57,7%. Uppfært klukkan 12:35 Í fyrri útgáfu fréttarinnar stóð á einum stað að könnunin hefði verið á meðal kjósenda Samfylkingarinnar. Það hefur verið lagað. Hópurinn var handahófsvalin úr viðhorfahópi Gallup.
Mest lesið Skólamál í Kópavogi: Bókun eftir bókun á fundi bæjarstjórnar Innlent Hafna „órökstuddum fullyrðingum“ Sigurðar Inga Innlent Sé hægt að gera byltingu í íslensku heilbrigðiskerfi Innlent Glímdi við veikindi fyrir andlátið sem breyttu persónuleika hans Innlent Menningarráðherra skipaði son heilbrigðisráðherra í formannsstörf Innlent Gátu ekki opnað hraðbankann þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Innlent Bylting framundan en Landspítalinn þurfi að hlaupa hraðar Innlent Þyrlan kölluð út vegna slasaðs manns í Gemludal Innlent Stefna Open AI vegna sjálfsvígs sonarins Erlent Grunaður hraðbankaþjófur nennti ekki með austur nóttina örlagaríku Innlent Fleiri fréttir Sé hægt að gera byltingu í íslensku heilbrigðiskerfi Skólamál í Kópavogi: Bókun eftir bókun á fundi bæjarstjórnar Hafna „órökstuddum fullyrðingum“ Sigurðar Inga Þyrlan kölluð út vegna slasaðs manns í Gemludal Menningarráðherra skipaði son heilbrigðisráðherra í formannsstörf Vara við svikapóstum í þeirra nafni Bylting framundan en Landspítalinn þurfi að hlaupa hraðar Faðir plokksins kenndi ráðherra að plokka Gátu ekki opnað hraðbankann þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Kári Stefánsson í beinni, erfiður hraðbanki og Dönum ekki skemmt Óttuðust um ferðamenn sem sátu fastir í Markarfljóti Glímdi við veikindi fyrir andlátið sem breyttu persónuleika hans Hraðbankaþjófur játar sök Framlengja gæsluvarðhald yfir leiðbeinandanum um fjórar vikur Supu hveljur á fundi með ráðherra á Egilsstöðum Grunaður hraðbankaþjófur nennti ekki með austur nóttina örlagaríku Með mikla áverka og mjög kaldur þegar hann fannst Móðirin áfram í haldi og húsleit á Írlandi Til skoðunar að flytja Sjálfstæðisflokkinn úr Valhöll Losun Íslands jókst á öllum sviðum og langt í land með skuldbindingar Bylting í heilbrigðisþjónustu og áróður Bandaríkjamanna Vilja halda leiðbeinandanum áfram bak við lás og slá Kynna drög að nýrri stefnu í heilbrigðismálum Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innbrot og slagsmál í miðborginni Segir dóminn áfellisdóm yfir seinagangi lögreglu í kynferðisbrotamálum Málafjöldi tvöfaldast milli ára: „Hálfur milljarður farinn nú þegar“ Heilbrigðisráðuneytið færir sig um set Enginn vilji taka ábyrgð á því hvenær eigi að loka Reynisfjöru Minntust þess ekki að hafa brennt tösku fyrir Stefán Blackburn Sjá meira