Maður með tveggja áratuga sakaferil að baki dæmdur í fangelsi fyrir árás gegn unnustu sinni Birgir Olgeirsson skrifar 4. maí 2016 16:32 Úr Héraðsdómi Reykjavíkur. vísir/vilhelm
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann til fjögurra mánaða fangelsisvistar fyrir líkamsárás gagnvart unnustu sinni. Árásin átti sér stað 1. mars í fyrra en manninum var gefið að sök að hafa hrint konunni á milli veggja í íbúð hennar og sparkað ítrekað í hana þar sem hún lá á gólfi, tekið hana kverkataki, allt með þeim afleiðingum að hún hlaut glóðarauga á hægara auga og roða á augnslímhúð, sentímetra langt sár á hvirfli hægra megin, eymsli yfir höfuðkúpu og undir báðum kjálkabörðum, marblett ofan við hægri mjaðmakamb og um tveggja sentímetra skrapsár ofan við vinstra brjóst. Í dómnum kemur fram að þegar lögregla mætti á heimili konunnar var hún illa til reika og með sýnilega áverka á höfði. Bar íbúð hennar merki þess að átök hefðu átt sér stað. Í fyrstu skýrslu hjá lögreglu greindi konan frá því að maðurinn væri unnusti hennar en ekki skráðu til heimilis hjá henni. Dómurinn taldi að ekki yrði séð að lögregla hafi þá eða síðar bent konunni á að leysa mætti hana undan vitnaskyldu sem kveður á um í 2. málsgrein laga um meðferð sakamála. Var það því niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur að ekki væri unnt að byggja niðurstöðu á skýrslugjöf konunnar hjá lögreglu. Dómurinn taldi hins vegar yfir allan vafa hafi að maðurinn hafi veist að konunni með þeim hætti sem í ákæru greinir. Læknir sannreyndi að konan var aum undir kjálkabörðum, sem studdi framburð hennar að maðurinn hafi tekið hana kverkataki. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavík, sem lesa má hér, kemur fram að maðurinn á að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 1994. Hann á að baki ofbeldisbrot og var árið 2007 dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar. Var hann meðal annars sakfelldur fyrir að stinga brotaþola með hnífi í þeim dómi. Árið 2010 var hann dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir ofbeldisbrot. Var hann því dæmdur til fjögurra mánaða fangelsisvistar fyrir líkamsárásina gegn unnustu sinni og taldi dómurinn ekki unnt að að skilorðsbinda refsingu mannsins vegna fyrri brota.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Brotlenti í djúpu gili Innlent Fleiri fréttir Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Sjá meira