Brjálað að gera hjá Slökkviliði Akureyrar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 4. maí 2016 21:27 Slökkviliðið að störfum á Akureyri.
Slökkvilið Akureyrar hefur haft nóg að gera í dag og í gær en frá gærdeginum hefur slökkviliðið alls sinnt 42 útköllum. „Þetta er mjög mikið,“ segir varðstjóri hjá slökkviliðinu. Slökkviliðið sinnir, eins og nafnið gefur til kynna eldvörnum, en sér einnig um sjúkraflutninga og tekur þátt í sjúkraflugi. Í gær sinnti slökkviliðið 22 útköllum, þar af þrettán sjúkraflutningum, fimm sjúkraflugum og fjórum dæubílaútköllum. Í dag eru útköllin orðin nítján, þar af sextán sjúkraflutningar. „Þessi fjöldi er ekki algengur, við erum oft í tíu til tólf útköllum á dag,“ segir Jónas Baldur Hallson, varðstjóri hjá slökkviliðinu. Hann segir að auk óvenju mikils fjölda útkalla hafi einnig verið óvenju mikið um alvarleg útköll. „Það er búinn að vera hár forgangur á mörgum af þessum útköllum og í dag erum við til að mynda búnir að fara í ellefu neyðarflutninga,“ segir Jónas. „Þegar mest lét vorum við með þrjá sjúkrabíla úti i einu. Þá köllum við þá út sem er lausir svo hægt sé að manna útköllin.“ Alls eru fimm manns á vakt í einu og sér slökkviliðið um eldvarnir og sjúkraflutninga á stóru svæði, allt frá Akureyri að Öxnadalsheiði, út til Dalvíkur, Grenivíkur, að Ljósavatnsskarði og upp á hálendinu inn frá Eyjafirði. Það hefur því verið töluvert álag á mannskapnum síðustu daga þrátt fyrir að flest útköllin hafi verið innanbæjar á Akureyri.
Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Fleiri fréttir Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Sjá meira