Vill leggja fram vantrauststillögu á Bjarna út af félögum í skattaskjóli Höskuldur Kári Schram skrifar 5. maí 2016 18:51 Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna. Vísir/Vilhelm
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir varaformaður þingflokks vinstri grænna vill að stjórnarandstaðan sameinist um vantrauststillögu á Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra út af tengslum hans og fjölskyldu hans við félög í skattaskjólum. Faðir Bjarni stofnaði fyrirtæki á Tortólu í gegnum panömsku lögfræðistofuna Mossack Fonseca. Fjallað er um aflandsfélag Benedikts Sveinssonar föður Bjarna í Stundinni í dag en upplýsingarnar koma úr Panamaskjölunum. Þar kemur fram að Benedikt stofnaði félagið Greenlight Holding Luxembourg S.A. á Tortólu árið 2000 og var félagið starfandi til ársins 2010. Það ár tók í gildi ný löggjöf á Íslandi sem fól í sér að eigendur aflandsfélaga þurftu að gera grein fyrir þessum eignum í skattframtölum. Benedikt sat sjálfur í stjórn félagsins ásamt Guðríði Jónsdóttur móður Bjarna og höfðu þau bæði prókúru fyrir félagið. Áður hefur komið fram að Bjarni Benediktsson notaðist við félag í skattaskjóli sem stofnað var í gegnum Mossack Fonseca árið 2006 til að stunda fasteignaviðskipti í Dúbaí. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir varaformaður þingflokks vinstri grænna segir að þær upplýsingar sem koma fram í umfjöllun Stundarinnar grafi enn frekar undan trúverðugleika Bjarna. Hún vill að stjórnarandstaðan leggi sameiginlega fram vantrauststillögu á Bjarna en segir þó að engar formlegar viðræður hafi fram á milli þingmanna stjórnarandstöðunnar um þetta. „Það hefur ekki verið neitt formlegt samtal um það að mér vitandi. En mér þykir ekki ólíklegt að fólk velti því upp í framhaldi af þessu,“ segir Bjarkey.
Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira