"Ég fagna því ef menn eiga peninga fyrir náttúruauðlindir landsins" Birta Björnsdóttir skrifar 7. maí 2016 19:30
Í áskorun Landverndar til forsætisráðuneytis og umhverfis- og auðlindaráðuneytis er skorað á ríkisstjórn Íslands að hlaupa undir bagga með sveitarfélagi Skútustaðahrepps hvað varðar nauðsynlegar aðgerðir í frárennslismálum á Mývatni sem og frekari rannsóknir á lífríkinu í vatninu, sem sé í bráðri hættu. „Við erum búin að vera að ýja að þessu allt kjörtímabilið. Við látum engin stór orð falla en viljum bara að fólk láti verkin tala og einhendi sér í þau verk sem þarf að ráðast í,"segir Yngvi Ragnar Kristjánsson, oddviti Skútustaðahrepps. „Það er auðvitað ljóst að það þarf að vakta og rannsaka þetta vatn meira. Við þurfum að hlúa að þeim rannsóknum sem eru á staðnum og auka þær. Jafnframt erum við bundin að því að koma á hreinsistöð hér fyrir stærstan hluta sveitarfélagsins. Við þurfum bara að ná því fram." Umhverfis- og auðlindaráðherra fagnar því að fólk láti sig málefni Mývatns varða en á vegum ráðuneytisins fari þegar fram mikil vinna tengd vatninu. „Það er ekki þannig að við höfum beðið eftir bréfi frá Landvernd til að hugsa um Mývatn vegna þess að bæði er nú rannsóknarstöð starfandi allt árið varðandi Mývatn og þar sem að við sáum ýmislegt var að gerast undanfarið þá fengum við líka fræðimann sem að hafði unnið áður hjá okkur á Umhverfisstofnun til að líka gera úttekt á Mývatni og Þingvallavatni með tilliti til þess hvort þetta væri út af aukningu á ferðamanna og þess vegna frárennsli frá mannfólkinu," segir Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra. „En þetta er bara mál sem er stöðugt í meðhöndlun hjá okkur í umhverfisráðuneytinu og bara mjög eðlilegt þegar við heyrum svona frá fleirum að við köllum þessa aðila, sem nú hafa látið í sér heyra, að borðinu með okkur ásamt okkar vísindafólki og við förum yfir stöðuna,Þetta er engin vá sem er að koma upp í dag eða gær. Þetta er það sem við höfum verið að skoða undanfarið ár. En það er alveg sjálfsagt og ég hef sagt það, maður bregst við og köllum alla aðila að borðinu í næstu viku til að fara yfir hvað er að. En ég ítreka að ég hef fengið skýrslur í hendur sem sanna ekki að þetta sé út af frárennsli frá mannfólki.“ Í áskorun Landverndar segir að lífríki Mývatns sé í bráðri hættu vegna næringaefnaauðgunar. Kúluskíturinn sé horfinn og hornsíla- og bleikjustofn vatnsins sé ekki svipur hjá sjón. Forstöðumaður Náttúrurannsóknarstöðvarinnar við Mývatn, sagði í viðtali við Fréttablaðið í mars síðastliðnum að ástandið í vatninu væri af mannavöldum, meðal annars vegna frárennslis við þéttbýli, áburðargjafar og iðnreksturs. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær sagði Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, að bregðast þurfi við þróuninni á Mývatni hið snarasta. Sagði hann ekki skipta máli hvað þær framkvæmdir kæmu til með að kosta. „Ég fagna því ef menn hafa peninga fyrir náttúruauðlindir landsins. Ég get náttúrlega ekki annað sem umhverfisráðherra en mjög fagnað því. Ef Jón Gunnarsson býr yfir slíkur fjármunum þá er ég einstaklega ánægð,“ segir Sigrún Magnúsdóttir.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira