Fjórðungur landsmanna hefur frestað læknisþjónustu sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 8. maí 2016 09:28 Ástæðan meðal annars kostnaður og tímaleysi. vísir/völundur
Tæplega fjórðungur landsmanna, eða um 21,8 prósent, hefur frestað því að sækja sér læknisþjónustu sem þörf var fyrir. Ástæðurnar eru meðal annars kostnaður, tímaleysi eða að fólk vissi ekki til hvaða læknis ætti að leita. Þetta kemur fram í könnun Rúnars Vilhjálmssonar, prófessors í félagsfræði við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Hann fjallaði um niðurstöður könnunarinnar á málþingi sem BSRB og ASÍ stóðu fyrir fyrr í vikunni. Könnunin var gerð á síðasta ári. Þátttakendur voru spurðir hvort þeir hefðu frestað læknisþjónustu sem þörf hafi verið fyrir síðustu sex mánuði á undan. Alls sögðust 21,8 prósent hafa gert það, en það er svipað hlutfall og árið 2006 þegar 21,7 prósent sögðust hafa frestað því að leita sér lækninga í sambærilegri könnun. Árið 2006 nefndu 30 prósent þeirra sem sögðust hafa frestað læknisheimsókn að ástæðan væri kostnaður. Í könnuninni í fyrra sögðu rúmlega 41 prósent kostnaðinn ástæðuna. Rúnar kannaði einnig meðalútgjöld íslenskra heimila vegna heilbrigðisþjónustu. Útgjöldin til þessa málaflokks voru að meðaltali tæpar 156 þúsund krónur á ári á árinu 2014. Árið 2006 eyddi heimilið um 174 þúsund krónum í þjónustuna, að sögn Rúnars. Hann segir ákveðnar skýringar liggja að baki. Til dæmis eyði fólk mun lægri upphæðum í tannlæknaþjónustu, og tæki og vörur aðrar en lyf sem keypt eru í lyfjaverslunum. Þá segi þetta ekki alla söguna, þar sem rauntekjur heimilanna hafi lækkað mikið eftir árið 2008.Nánar má lesa um rannsókn Rúnars hér.
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Innlent Fleiri fréttir „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Sjá meira