Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um vopnalagabrot og þjófnaði Jóhann Óli Eiðsson skrifar 9. maí 2016 17:07 Heimilt var að vista manninn í einangrun til 6. maí. vísir/heiða
Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra um að karlmaður skuli sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 27. maí næstkomandi. Þar að auki sat maðurinn í einangrun til 6. maí. Maðurinn var handtekinn 28. apríl eftir að hann réðst, ásamt félaga sínum, inn á heimili annars manns. Í hinum kærða úrskurði kemur fram að þeir hafi verið vopnaðir hnífi og nokkuð greinilega undir áhrifum fíkniefna eða lyfja. Meint vopnalagabrot er ekki hið eina sem maðurinn er grunaður um. Í lok febrúar er talið að hann hafi stolið síma og debet- og kreditkortum úr bifreið. Kreditkortið notaði hann til að panta vörur af netinu. Þá er hann einnig grunaður um að hafa brotist inn í bifreið og stolið þaðan verkfærum. Hluti verkfæranna var merktur eiganda þeirra og fannst við húsleit á heimili hins meinta brotamanns. Þar fundust einnig munir sem talið er að séu þýfi auk fíkniefna. Talið var að rökstuddur grunur væri uppi um refsiverða háttsemi af hálfu mannsins. Því var gæsluvarðhaldsúrskurðurinn staðfestur.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira