Lögregla þarf ekki að afhenda farsíma með meintum nektarmyndum 20. apríl 2016 17:08 Hæstiréttur taldi rannsókn lögreglu aðfinnsluverða. Vísir/GVA
Lögreglan á Suðurnesjum þarf ekki að afhenda karlmanni, sem grunaður er um að hafa ætlað að birta nektarmyndir af fyrrum unnustu sinni, farsíma hans, samkvæmt úrskurði Hæstaréttar frá því í dag. Dómurinn telur hins vegar aðfinnsluvert að lögregla hafi rannsakað efnisinnihald farsímans án þess að fyrir liggi samþykki mannsins eða dómsúrskurður. Maðurinn var handtekinn 18. mars síðastliðinn vegna gruns um að hafa hótað konunni að birta nektarmyndir af henni opinberlega. Parið hafði, á tímabilinu 2014 til 2015, skipst á ljósmyndum, að því er segir í greinargerð með dómnum. Konan greindi lögreglu frá því að maðurinn hefði reglulega haft í hótunum við hana um að birta opinberlega þær myndir sem hann hafi átt af henni og þá hafi hann gefið til kynna með ýmsum hætti að hann hafi þá þegar birt af henni ljósmyndirnar. Farsími mannsins var haldlagður við handtökuna í mars. Maðurinn neitaði þó að upplýsa lögreglu um aðgangsorð símans en lögreglu tókst að komast „fram hjá læsingum símans“ og fyrir liggur að hún hafi þegar hlaðið niður og að hluta rannsakað efnisinnihald símans. Hæstiréttur féllst á að upplýsingar og gögn í símanum gætu haft sönnunargildi og skipt miklu fyrir rannsókn málsins. Aftur á móti hafi lögreglan brotið gegn friðhelgi einkalífs mannsins með því að rannsaka efni farsíma hans án þess að fyrir lægi dómsúrskurður um þá aðgerð. Taldi Hæstiréttur rannsókn lögreglu að því leyti aðfinnsluverða.
Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira