NATO-ríkin og Rússar funduðu í fyrsta sinn í tvö ár Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 20. apríl 2016 17:43 Bandalagsríkin ítrekuðu einarðan stuðning við fullveldi Úkraínu og áréttuðu fordæmingu á ólöglegri innlimun Krímskaga í Rússland Vísir/Getty
Í dag fór fram í Brussel fundur NATO-Rússlandsráðsins en í því eiga sæti aðildarríki Atlantshafsbandalagsins og Rússland. Ráðið hefur ekki komið saman til fundar í hartnær tvö ár vegna aðgerða Rússlands í Úkraínu. Rætt var um átökin í Úkraínu og framkvæmd Minsk-samkomulagsins, aðgerðir til draga úr spennu og auka gagnsæi á hernaðarsviðinu og þróun öryggismála í Afganistan. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. „Ég tel afar jákvætt að NATO-Rússlandsráðið hafi fundað um þessi mikilvægu málefni,“ segir Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra. „Atlantshafsbandalagið og Rússland eru vissulega ósammála um margt en það er mikilvægt að halda samtalinu áfram og leita leiða til að koma á friði í Úkraínu“. Bandalagsríkin ítrekuðu einarðan stuðning við fullveldi Úkraínu og áréttuðu fordæmingu á ólöglegri innlimun Krímskaga í Rússland. Þau lýstu einnig áhyggjum af vaxandi átökum í austurhluta Úkraínu og áreiti gagnvart vopnahléseftirlitsmönnum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE. Kallað var eftir því að allir aðilar að Minsk-samkomulaginu uppfylltu skyldur sínar. Bandalagsríkin lýstu áhyggjum af því að dregið hefði úr gagnsæi og upplýsingagjöf tengdum auknum hernaðarumsvifum Rússa. Farið var fram á að Rússland taki þátt í samstarfi um endurbætur á alþjóðlegu regluverki til að auka gagnsæi og traust, þá sérstaklega svokölluðu Vínarskjali á vettvangi ÖSE. Þá var rætt um öryggisástandið í Afganistan og þær áskoranir sem stjórnvöld þar í landi standa frammi fyrir. Bandalagið vinnur áfram að því í samvinnu við heimamenn að bæta stöðugleika og öryggi.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Sjá meira