Innlent

Bein útsending: Nýi ráðherrann og forsetaframboð á Sprengisandi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðni Th. Jóhannesson og Lilja Alfreðsdóttir verða á meðal gesta á Sprengisandi.
Guðni Th. Jóhannesson og Lilja Alfreðsdóttir verða á meðal gesta á Sprengisandi. Vísir
Lilja Alfreðsdóttir, nýskipaður utanríkisráðherra, verður á meðal gesta Heimis Más Péturssonar á Sprengisandi á Bylgjunni klukkan tíu. Lilja er sem kunnugt er ráðherra í nýju ráðuneyti Sigurðar Inga Jóhannssonar en hún er ráðherra utan þings og stórættuð innan Framsóknarflokksins.

Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur sem orðaður hefur verið við forsetaframboð og segist enn liggja undir feldi í þeim efnum mætir í þáttinn. Svo gæti farið að línur skýrist varðandi mögulegt framboð Guðna í þætti dagsins.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þingkona Samfylkingarinnar ræðir forsetaframboðsraunir og óvænt útspil Ólafs Ragnars Grímssonar og önnur þjóðþrifamál með Guðna. Mikil ólga er í stjórnmálunum og ríkisstjórnin nýbúin að ákveða að þing komi saman til fundar í ágúst og kosið verði í október.

Þá verður rithöfundurinn Auður Haralds á meðal gesta Heimis Más.

Sprengisandur á sínum stað klukkan tíu í beinni útsendingu á Bylgjunni.

Smellið hér til að hlusta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×