Tugþúsundir mótmæltu fríverslunarsamningi í Hannover Stefán Ó. Jónsson skrifar 23. apríl 2016 16:05 "Stöðvið TTIP“ stendur á þessu skilti mótmælenda. vísir/epa
Að minnsta kosti þrjátíu þúsund manns fjölmenntu í Hannover í dag til að mótmæla fyrirhuguðum fríverslunarsamningi á milli Evrópu og Bandaríkjanna. Mótmælendur segja að um ólýðræðislegan samning sé að ræða sem eigi eftir að bitna á neytendum og vinnandi fólki. Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, hefur barist ötullega fyrir því að samningurinn verði samþykktur. Hann telur að með samningnum verði til milljónir starfa og að viðskipti muni aukast. Hann mun sækja Hannover heim á morgun til að setja stærðarinnar viðskiptaráðstefnu. Kanslari Þýskalands, Angela Merkel, hefur að sama skapi talað máli samningsins en þrátt fyrir það hefur stuðningur almennings við fyrirhugaða undirritun minnkað umtalsvert, eins og fram kemur í frétt Reuters um málið. Viðræður um samninginn, TTIP, hafa staðið yfir í um þrjú ár en verði hann samþykktur verður til stærsta fríverslunarsvæði í heimi. Andstæðingar hafa lýst yfir efasemdum um samninginn og segja óeðlilega mikla leynd ríkja yfir viðræðunum. Þá óttast þeir að stórfyrirtækjum verði færð of mikil völd með samningnum og að matvælaöryggi verði ábótavant. Fjölmargir mótmælendanna í Hannover í dag báru skilti sem á stóð „Stöðvið TTIP“ og í samtali við fjölmiðla ytra segja þeir samninginn vera Trójuhest. Mótmælin í dag voru skipulögð af umhverfissamtökum, mannúðarsamtökum og stjórnmálaflokkum og fóru friðsamlega fram. Þjóðverjar hafa áður mótmælt TTIP, til að mynda í Berlín í október á síðasta ári en þá er talið að um 150 þúsund hafi mótmælt.
Mest lesið Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Innlent Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Innlent Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Innlent Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Erlent Fleiri fréttir Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sjá meira