Yfirvöld í N-Kóreu reiðubúin til þess að stöðva þróun kjarnorkuvopna Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 23. apríl 2016 23:30
Yfirvöld í Norður-Kóreu eru reiðubúin til þess að stöðva kjarnorkuvopnatilraunir sínar svo lengi sem Bandaríkjamenn hætti við árlegar heræfingar sínar með S-Kóreumönnum. Utanríkisráðherra landsins segir þó að N-Kórea sé í fullum rétti til þess að þróa sín eigin kjarnorkuvopn. Ri Su Yong, utanríkisráðherra N-Kóreu settist niður með blaðamanni Associated Press um helgina. Þar sagði hann að kjarnorkuvopnaþróun ríkisins væri ekkert nema nauðvörn vegna þrýstings frá Bandaríkjunum. Varaði hann við því að núverandi árekstrar ríkjanna myndu enda með ósköpum og að ef Bandaríkin væru reiðubúin til þess að draga úrfjandsamlegri hegðun í garð N-Kóreu væru yfirvöld þar í landi tilbúin til þess að gera slíkt hið sama. Minntist hann sérstaklega á árlegar heræfingar sem Bandaríkin halda í samvinnu við yfirvöld í S-Kóreu en æfingin í ár er sú stærsta sem haldin hefur verið og munu allt að þrjú hundruð þúsund hermenn taka þátt í henni. Yfirvöld í Bandaríkjunum og S-Kóreu segja að æfingin sé svar við kjarnorkuvopnatilraunum N-Kóreumanna. Kóreuskagi hefur verið á suðupunkti undanfarið ár og hafa samskipti á milli norður og suður-Kóreu sjaldan verið jafn dræm og nú. Segja yfirvöld í Suður-Kóreu segja að Norður-Kóreumenn geta komið kjarnorkuvopni fyrir á eldflaugum sem drífa um tvö þúsund kílómetra. Með því gætu þeir skotið vopnum að Suður-Kóreu, Japan, Kína og Rússlandi. Þá segja talsmenn varnarmálaráðuneytis Suður-Kóreu að nágrönnum þeirra í norðri hafi tekist að skjóta flugskeyti af kafbáti undan ströndum Norður-Kóreu í dag. Spurður að því hvort að líklegt væri að norður-kóreska stjórnin myndi falla vegna utanaðkomandi þrýstings og viskiptaþvinganna var svar Ri Su Yong einfalt. „Ekki halda niðri í ykkur andanum.“
Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira