Samtök ferðaþjónustunnar líða ekki undirboð á vinnumarkaði Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 25. apríl 2016 07:00 Frést hefur af fyrirtækjum sem vilja ráða til sín sjálfboðaliða í störf sem ættu að vera launuð. vísir/Andri Marinó „
Í okkar huga er á kristaltæru að fyrirtæki, hvort heldur sem er í ferðaþjónustu eða öðrum atvinnugreinum, eiga aldrei að byggja samkeppnisforskot sitt á sjálfboðavinnu,“ segir Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar, og bætir því við að það gangi ekki upp í íslenskri ferðaþjónustu ef slík undirboð eru stunduð í samkeppni við fyrirtæki sem stunda heiðarlega og ábyrga atvinnustarfsemi. Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, ræddi hagnýtingu ferðaþjónustufyrirtækja á sjálfboðaliðum á málþingi Vinnumálastofnunar í síðustu viku. Hann gagnrýndi Samtök ferðaþjónustunnar og sagði aðgerðaleysi þeirra áberandi. Skapti segir samtökin hvetja fyrirtæki til að hlíta kjarasamningum og standa skil á sköttum og skyldum. „Það er afar brýnt að fyrirtæki í öllum atvinnugreinum standi klár á skyldum sínum gagnvart starfsmönnum og samfélaginu. „Við líðum ekki að brotið sé á starfsfólki og að okkar mati er mikilvægt að sótt sé að þeim fyrirtækjum sem ekki virða lágmarksákvæði kjarasamninga,“ segir hann. Skapti tekur fram að á síðasta ári hafi rúmlega nítján þúsund manns starfað við ferðaþjónustu um land allt. „Þau tilvik sem hafa komið upp að undanförnu eru of mörg, en þó verður að hafa í huga að þau eru aðeins brotabrot af heildinni,“ segir Skapti. „Á mörgum stöðum er regluverk í kringum ferðaþjónustuna mjög veikt og hefur ekki þróast í takt við þroska greinarinnar.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 25. apríl
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Erlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira