Innlent

Framkvæmdastjóri Framsóknar og fyrrverandi ráðherra brúkuðu aflandsfélög

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Finnur Ingólfsson, Hrólfur Ölvisson og Helgi S. Magnússon.
Finnur Ingólfsson, Hrólfur Ölvisson og Helgi S. Magnússon. vísir/pjetur/aðsend/anton
Nöfn Finns Ingólfssonar, fyrrverandi Seðlabankastjóra og ráðherra, Hrólfs Ölvissonar, framkvæmdastjóra Framsóknarflokksins, og Helga S. Guðmundssonar, fyrrverandi formanns bankaráðs Seðlabankans, er að finna í Panama-skjölunum svokölluðu. Mennirnir þrír eiga það allir sameiginlegt að hafa verið áhrifamenn í Framsóknarflokknum. Þetta kom fram í umfjöllun Kastljóss og Reykjavík Media sem sýnd var á RÚV í kvöld en áður hefur verið fjallað um málefni Finns á Vísi.

Sjá einnig: Finnur tapaði talsverðu fé á aflandsfélaginu Adair

Úr efni skjalanna má lesa að félag Finns og Helga, sem skráð var í Panama, keypti hlut í Landsbankanum með fé sem fengið var að láni frá bankanum. Þau viðskipti áttu sér stað árið 2007.

Í þættinum var einnig greint frá fjölda félaga í eigu Hrólfs Ölvissonar. Sá átti til að mynda sæti í bankaráði Búnaðarbankans um svipað leiti og bankinn var einkavæddur auk þess að hafa verið stjórnarformaður Vinnumálastofnunar á árunum 1998-2008.

Þáttastjórnendur röktu hvernig félag, sem var að hluta í eigu Hrólfs, færði sér félag á Tortóla í nyt til að fela fjárfestingu í dönsku félagi. Lánasamningi þess efnis var meðal annars varpað upp í Kastljósi en þar kom fram að markmiðið væri að tryggja að nafn íslenska félagsins kæmi ekki fram í tengslum við fjárfestingarnar.

Hrólfur stóð einnig í viðskiptum í tengdum BM Vallá en Víglundur Þorsteinsson, fyrrum eigandi fyrirtækisins, hefur ítrekað sagt að þar hafi lög verið brotin. Í svari við fyrirspurn Kastljóss sagði Hrólfur að hann hafi upplýst Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann flokksins, um viðskiptin. Málið hefur meðal annars verið gagnrýnt af þingmönnum flokksins.

Úttektina í heild sinni má finna í Kastljósi kvöldsins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×