Innlent

Meðalverð á fermetra í Vesturbæ er 2.200 krónur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Meðalverð á fermetra í leiguíbúðum var rúmlega 2.200 krónur í vesturhluta Reykjavíkur á fyrsta ársfjórðungi.
Meðalverð á fermetra í leiguíbúðum var rúmlega 2.200 krónur í vesturhluta Reykjavíkur á fyrsta ársfjórðungi.
Meðalverð á fermetra í leiguíbúðum var rúmlega 2.200 krónur í vesturhluta Reykjavíkur á fyrsta ársfjórðungi. Annars staðar á höfuðborgarsvæðinu var verðið um 85-90% af þeirri tölu. Á Akureyri var meðalverðið um 70% af dýrasta svæðinu á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,1% á milli febrúar og mars og hefur hækkað um 6,2% undanfarna 12 mánuði. Síðustu 12 mánuði hefur kaupverð fjölbýlis á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 8,7% sem er töluvert meira en nemur hækkun leiguverðs.

Kaupverð fjölbýlis hefur þannig hækkað 2,1% meira en leiguverð frá upphafi ársins 2011.

Þar kemur jafnframt fram að á fyrsta ársfjórðungi var leiguverð að jafnaði hæst í vesturhluta Reykjavíkur og var hæsta leiguverðið fyrir 2ja herbergja íbúðir á því svæði. Leiguverðið var svo svipað á öðrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 27. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×