Sextán liðsmönnum bandaríska hersins refsað vegna loftárásar á sjúkrahús í Afganistan Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. apríl 2016 23:37 Spítalinn stórskemmdist í árásinni. Vísir/Getty
Sextán liðsmönnum bandaríska hersins hefur verið refsað vegna loftárásar bandaríska hersins á spítala í Afganistan í október á síðasta ári. 42 létust en árásin var gerð fyrir mistök.Samkvæmt heimildum fréttastofu AP munu liðsmennirnir ekki verða sóttir til saka heldur hefur þeim verið veitt opinber áminning. Í frétt BBC kemur fram að slíkar áminningar geti haft alvarleg áhrif á feril þeirra liðsmanna sem um ræðir innan hersins. Árásin var gerð í október á síðasta ári. Í fyrstu sögðu bandarísk hernaðaryfirvöld að Talibanar hefðu skotið á hermenn frá sjúkrahúsinu en var það fljótlega dregið til baka. Samtökin Læknar án Landamæra segja að yfirvöld í Afganistan og Bandaríkjunum hafi vitað nákvæma staðsetningu sjúkrahússins og að starfsmenn samtakanna hafi margsinnis reynt að ná sambandi við bandaríska herinn á meðan loftárásinni stóð. Bandaríkin hafa viðurkennt að árásin var gerð fyrir mistök og var opinberri rannsóknarnefnd komið á laggirnar til þess að rannsaka árásina. Hefur Barack Obama beðist afsökunar á árásinni sem var ein sú banvænasta í 15 ára sögu átakanna í Afganistan.
Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent „Það bjó enginn í húsinu“ Innlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Fleiri fréttir Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sjá meira