Tannlæknir frá helvíti dæmdur í átta ára fangelsi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 29. apríl 2016 10:00 Myndin er sviðsett. Vísir/Getty
Hollenski tannlæknirinn Jacobus van Nierop hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi í Frakklandi fyrir fjölmörg brot gegn viðskiptavinum sínum. Svo virðist sem að tannlæknirinn hafi leikið sér að því að meiða viðskiptavini sína. Van Nierop var handtekinn á síðasta ári eftir að um 100 manns höfðu kvartað undan starfsháttum tannlæknisins. Við rannsókn málsins kom í ljós að Van Nierop hafði ekki leyfi til þess að stunda tannlækningar í Frakklandi. Virðist hafa verið góð ástæða fyrir því ef marka má vitnisburð fórnarlamba hans. „Ég var í þrjá tíma í tannlæknastólnum hjá honum og það fossblæddi úr mér,“ sagði Sylviane Boulesteix, 66 ára gömul kona en Van Nierop dró úr henni átta tennur og setti í stað þeirra gervitennur sem pössuðu illa í góm hennar. Á meðan á aðgerðinni stóð flæddi blóðið úr Boulesteix en það virðist ekki hafa stöðvað Van Nierop í að skella sér í hádegismat á meðan viðskiptavinurinn mátti bíða í stólnum. „Hann útskýrði aldrei fyrir mér hvað hann væri að gera. Hann er skrýmsli,“ sagði Boulesteix við fréttastofu AP um reynslu sína af viðskiptum við tannlækninn. Dómstóll í bænum Neves í Frakklandi dæmdi tannlækninn í átta ára fangelsi fyrir 85 ákæruatriði sem sneru meðal annars að vísvitandi ofbeldi og fjársvikum. Brotin áttu sér stað á árunum 2009 til 2012. Van Nieroop flúði til Kanada árið 2013 til þess að sleppa undan ákærum á hendur sér en var framseldur til Hollands og síðar Frakklands. Við vitnaleiðslur óskaði lögfræðingur eins af fórnarlömbum tannlæknisins eftir afsökunarbeiðni frá Van Nierop. Svar tannlæknisins var einfalt. „Ég finn ekki fyrir neinu lengur. Ef ég myndi biðjast afsökunar væri ég bara að ljúga,“ svaraði Van Nierop sem hefur verið meinað að stunda tannlækningar til frambúðar.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Sjá meira