Innlent

Banaslys í Stykkishólmi þegar bíll fór í höfnina

Birgir Olgeirsson skrifar
Lögreglan á Vesturlandi rannsakar málið.
Lögreglan á Vesturlandi rannsakar málið. Vísir
Karlmaður lést eftir að bíll hans fór í höfnina í Stykkishólmi í gærkvöldi. Lögreglan á Vesturlandi greinir frá þessu á Facebook-síðu sinnien þar kemur fram að slysið hafi átt sér stað um hálf tíu leytið í gærkvöldi en maðurinn hafi verið látinn þegar björgunaraðilar náðu á vettvang. Hann var einn í bílnum. 

Fer lögreglan á Vesturlandi með rannsókn á tildrögum slyssins en á vef Skessuhorns kemur fram að ekki sé hægt að gefa upp nafn mannsins að svo stöddu.

Um kl. 21:30 í gærkvöldi, 9. apríl fór bifreið í höfnina á Stykkishólmi. Einn maður var í bílnum og var hann látinn þ...

Posted by Lögreglan Vesturlandi on Sunday, April 10, 2016



Fleiri fréttir

Sjá meira


×