Innlent

Samherji byggir upp á Dalvík

Sveinn Arnarsson skrifar
Á Dalvík.
Á Dalvík. Fréttablaðið/Pjetur
Samherji áformar að reisa nýtt hátæknifrystihús á Dalvík á komandi misserum og með því styrkja ennfremur landvinnslu sína í sveitarfélaginu.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri og einn eigandi Samherja, tilkynnti þessi áform á árshátíð Samherja á Akureyri um helgina.

Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson. formaður byggðaráðs Dalvíkurbyggða, fagnat áformum Samherja og segist vilja gera allt sem í hans valdi stendur til að hjálpa til við uppbygginguna. Samherji sé hryggjarstykkið í atvinnulífi Dalvíkinga.

„Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur öll að Samherji vilji halda áfram að byggja upp á Dalvík enda hryggjarstykkið í atvinnulífinu og afleidd störf mjög mörg. Ég mun gera allt sem ég get til að styðja við þessi áform í sveitarstjórn,“ segir Gunnþór.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 11. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×