Prestar sammála Pírötum um afnám helgidagafriðs Bjarki Ármannsson skrifar 11. apríl 2016 08:51 Á Kirkjuþingi. vísir/gva
Prestafélag Íslands styður frumvarp Pírata og Bjartrar framtíðar þess efnis að fella burt lög um helgidagafrið. Í umsögn stjórnar félagsins um frumvarpið segir að félagið taki undir þau rök flutningsmanna að lögin „eigi ekki við í nútíma samfélagi.“RÚV greindi fyrst frá. Samkvæmt lögum um helgidagafrið getur það varðar sektum að standa að samkomum eða skemmtunum á helgidögum þjóðkirkjunnar.Flutningsmenn frumvarpsins segja ekki ástæðu til að takmarka frelsi fólks með þessum hætti og gera jafnframt þá kröfu að það sé atvinnurekendum í sjálfsvald sett hvort þeir hafi opið á hátíðisdögum, í samráði við starfsmenn og í samræmi við ákvæði kjarasamninga. „Stjórnin tekur undir rök flutningsmanna og telur að þessi lög eigi ekki við í nútíma samfélagi þar sem fólk aðhyllist mismunandi trúarbrögð og lífsskoðanir og vegna stóraukins straums ferðafólks,“ segir í umsögn Prestafélagsins. „Prestafélagið telur ekki eðlilegt að fólki sé refsað fyrir ákveðnar skemmtanir á helgidögum kristins fólks.“ Þá er í umsögninni bent á að upprunalegt markmið laganna hafi fyrst og fremst verið að standa vörð um frítíma fólks. Þar sem frítökuréttur og hvíldartími sé nú þegar tryggður í kjarasamningum og lögum um fjörutíu stunda vinnuviku, sé ekki lengur ástæða til að standa vörð um þessi lög. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, sagðist í viðtali við fréttastofu nýverið telja að lög um helgidagafrið séu af hinu góða. Gott sé að hafa löggjöf sem „styðji við og rammi inn“ líf landsmanna.
Tengdar fréttir Píratar vilja lög um helgidagafrið burt Verslunarstarfsemi, dansleikir og skemmtanir verða heimilar á helgidögum ef frumvarp Pírata verður að lögum. 2. mars 2016 17:25 Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Sjá meira
Píratar vilja lög um helgidagafrið burt Verslunarstarfsemi, dansleikir og skemmtanir verða heimilar á helgidögum ef frumvarp Pírata verður að lögum. 2. mars 2016 17:25