Þröstur telur kjúklinga geta styggt veiðimenn Garðar Örn Úlfarsson skrifar 15. apríl 2016 07:00 Skítnum frá kjúklingabúinu á að dreifa á svæðinu. vísir/friðrik þór
Áætlun eiganda Jarlsstaða í Landsveit, Þórs Þorsteinssonar, um að koma upp kjúklingabúi fyrir sextíu þúsund fugla bíður enn afgreiðslu hjá Rangárþingi ytra þar sem rannsókn á áhrifum starfseminnar á vatnsvernd á svæðinu er ólokið. Þórarinn hafði í samvinnu við Sláturfélag Suðurlands áður haft áform um uppbyggingu sömu kjúklingabúa annars staðar í landi sínu. Verkefninu var hafnað í desember síðastliðinn af Rangárþingi ytra vegna nálægðar við vatnsverndarsvæði. Þór sótti þá um leyfi fyrir fuglahúsunum á nýjum stað. Fram kemur í umsögn sem verkfræðistofan Mannvit gerði fyrir Þór að ætlunin sé að nota hænsnaskít sem falli til á búinu sem áburð á 300 hektara lands. Lindarvatni við svokallað Kerauga stafi ekki hætta af frárennsli frá búinu. Engu að síður ákvað sveitarfélagið að kanna nýja staðsetningu með tilliti til grunnvatnsrennslis á svæðinu og stendur sú rannsókn enn.Þröstur Elliðason, veiðileyfsali og leigutaki urriðveiðiárinnar Minnivallalækjar.vísir/gvaÍ millitíðinni hafa borist athugasemdir frá ýmsum í nágrenninu. Þröstur Elliðason, veiðileyfasali og leigutaki urriðaveiðiárinnar Minnivallalækjar, mótmælir harðlega í tölvubréfi til Rangárþings ytra. „Fyrst og fremst vegna væntanlegs fnyks frá búinu sem bærist yfir svæðið, ekki beint aðlaðandi fyrir hina fjölmörgu erlendu veiðimenn sem í lækinn sækja á hverju ári,“ skrifar Þröstur sem kveður hugsanlega mengun vekja áhyggjur. „Er mikið í húfi fyrir leigutaka og landeigendur að lækurinn verði ekki fyrir skaða af völdum þessarar starfsemi og ekki réttlætanlegt að taka þá áhættu með þessum hugmyndum. Stangveiði er stunduð í Minnivallalæk frá 1. apríl og út september. Afkomendur fyrri ábúenda og núverandi sumarhúsaeigendur í landi Stóru-Valla mótmæla einnig harðlega. Þeir gera meðal annars athugasemdir við yfirvofandi lyktarmengun og háværan hvin frá loftræstingu slíkra kjúklingabúa sem rjúfa muni kyrrðina allan sólarhringinn. Sömuleiðis óttast þeir grunnvatnsmengun. „Búast má við lyktarmengun þegar vindur stendur að frístundabyggð og óásættanlegt að bjóða upp á slíkar aðstæður á svæði sem fólk sækir sérstaklega til að upplifa kyrrð og hreint loft í Landsveit,“ segir í bréfi sem fjórir sumarhúsaeigendur skrifa til skipulagsstjóra Rangárþings ytra. Þeir segja einnig áformum um frekari sumarhúsabyggð ógnað. „Ekki verður séð að þetta tvennt gangi saman.“
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira