Flestir vilja Katrínu Jakobs sem forsætisráðherra sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 15. apríl 2016 13:04 Hátt í helmingur íslenskra kvenna vill sjá Katrínu sem forsætisráðherra á móti ríflega fjórðungi karla. Vísir
Flestir myndu vilja sjá Katrínu Jakobsdóttur, formann Vinstri grænna, í embætti forsætisráðherra, samkvæmt nýrri könnun Þjóðarpúls Gallup. Næst flestir nefndu Bjarna Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. Ríflega fjórir af hverjum tíu sem tóku þátt tóku ekki afstöðu. Af þeim sem tóku afstöðu nefndu 37 prósent Katrínu Jakobsdóttur. Næst flestir nefndu Bjarna Benediktsson, eða 20 prósent. Þar á eftir kemur Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, með sex prósent, og Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra fylgir þar á eftir með 5 prósent. Hátt í helmingur íslenskra kvenna vill sjá Katrínu sem forsætisráðherra á móti ríflega fjórðungi karla, og að sama skapi vilja fleiri karlar en konur sjá Bjarna sem forsætisráðherra. Katrín er vinsælli á meðal yngra fólks en eldra og á meðal íbúa höfuðborgarsvæðisins en landsbyggðarinnar, að því er segir í könnuninni. Bjarni á hins vegar meira upp á pallborðið hjá fólki fertugu og eldra, en yngra fólki. Fólk með háskólamenntun er líklegra en fólk með minni menntun að baki til að nefna Katrínu, en hið gagnstæða á við um Bjarna. Loks eru stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar mun líklegri en þeir sem styðja hana ekki til að nefna Bjarna, og Katrín og Bjarni eru bæði vinsælli hjá þeim sem kysu þeirra flokka en aðra ef kosið yrði til Alþingis í dag. Könnunin var gerð rafrænt dagana 7. til 13. apríl sl. Heildarúrtaksstærð var 1.434 og þátttökuhlutfall var 59,2 prósent. Einstaklingar voru handahófsvaldir úr viðhorfahópi Gallup.
Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Fleiri fréttir Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Sjá meira