Álverin hefðu tekið 90 % meiri orku 16. apríl 2016 07:00 Aflstöð Kárahnúkavirkjunar í Fljótsdal var komin í fullan rekstur árið 2007 – uppsett afl er 690 MW. vísir/GVA
Hefðu áform um byggingu álvera í Helguvík og á Bakka gengið eftir hefði það útheimt tæplega þúsund megavött af orku, en orkuþörf tveggja kísilvera sem eru að taka þar til starfa á næstu misserum er aðeins tíundi hluti þess sem rekstur álveranna tveggja hefði útheimt. Þetta kom fram í máli Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar, á ársfundi fyrirtækisins á fimmtudag, sem gerði grein fyrir rekstri fyrirtækisins og þeim breytingum sem eru staðreynd í viðskiptaumhverfi fyrirtækisins.Hörður ArnarsonÞar vísaði hann til áforma um uppbyggingu orkufreks iðnaðar í Helguvík og á Bakka sem hefur um árabil verið á teikniborðinu. Í stað álveranna hafa komið kísilver PCC á Bakka þar sem aflþörfin er 58 megavött (MW) fyrir fyrsta áfanga og hins vegar kísilvers United Silicon með aflþörf upp á 35 MW. Þetta eru tveir nýjustu viðskiptavinir Landsvirkjunar sem hefja rekstur á þessu og næsta ári. Hörður lýsti því að eftirspurn eftir raforku fyrirtækisins er meiri en hægt er að anna – og það eru ekki aðeins stóriðjufyrirtæki sem berja að dyrum. Það eru gagnaver sem hafa tekið til sín 30 MW frá árinu 2012 til dagsins í dag. Það er líka grænn iðnaður, aukin notkun rafmagns á almennum markaði, í ferðaþjónustu og rafvæðingu í sjávarútvegi. Orkuskipti í samgöngum, nefndi hann einnig. Þeirri spurningu var beint til Harðar á fundinum hvaða skilaboð stjórnendur Landsvirkjunar hefðu tekið til sín úr nýrri skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir verkefnisstjórn rammaáætlunar, og sýndi að sextíu prósent landsmanna eru andvíg því að virkja til að auka stóriðju á Íslandi en aðeins fimmtán prósent eru því fylgjandi. Hörður sagði að niðurstaðan „mótaðist kannski af góðu efnahagsástandi“ en það væri áhugavert að í sömu könnun hafi komið fram að 75 prósent svarenda væru því fylgjandi að virkja fyrir fjölbreyttan iðnað, sem mikil eftirspurn væri eftir og rúmlega 80 prósent fylgjandi því að virkja fyrir orkuskipti. „Þannig að það fer mjög mikið eftir því í hvað orkan er notuð hver stuðningurinn er, og ég held að það sé hlutur sem við þurfum að taka tillit til,“ sagði Hörður í svari sínu.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 16. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira