Dæmdur fyrir að svíkja rúmar 40 milljónir undan skatti Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. apríl 2016 10:41 Maðurinn var dæmdur til að greiða 82 milljóna króna sekt í ríkissjóð. vísir/vilhelm
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær karlmann á sextugsaldri í 10 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að svíkja rúmlega 40 milljónir undan skatti á árunum 2011 og 2012. Þá var maðurinn jafnframt dæmdur til að greiða 82 milljónir króna í sekt til ríkissjóðs vegna brotanna. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa ekki, sem stjórnarmaður og daglegur stjórnandi einkahlutafélagsins Byggingafélagið Fjörður ekki staðið skil á virðisaukaskattskýrslum félagsins vegna uppgjörstímabilanna september-október og nóvember-desember rekstrarárið 2011 og september-október 2012. Þá var hann einnig ákærður fyrir að hafa ekki skilað virðisaukaskattskýrslum félagsins á réttum tíma vegna tímabilanna janúar-febrúar til og með júlí-ágúst rekstrarárið 2012. Fyrir dómi neitaði maðurinn sök. Hann var spurður að því hvers vegna virðisaukaskattskýrslum hefði ekki verið skilað, en hann bar ábyrgð á því í rekstri félagsins. Svaraði hann því til að hann hefði ekki vitað betur en að þeim hafi verið skilað. Varðandi skýrslurnar sem var ekki skilað á réttum tíma kvaðst maðurinn ekki átta sig almennilega á því, þeim hafi átt að skila á réttum tíma. Þá bar maðurinn upp ýmsar ástæður fyrir því að virðisaukskatti hafi ekki verið skilað. Meðal annars hafi félagið átt útistandandi innskatt sem hann taldi að hefði átt að ganga upp í þessa skuld. Dómurinn féllst hins vegar á málatilbúnað ákæruvaldsins um að brot mannsins væru fullframin. Þá væri fjárhæðin sem skotið var undan skatti meiriháttar. Var maðurinn því dæmdur til refsingar, 10 mánaða skilorðsbundið fangelsi eins og áður segir, og til að greiða tvöfalda þá upphæð sem hann sveik undan skatti, eða samtals 82 milljónir króna.Dóm héraðsdóms má sjá í heild sinni hér.
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira