Íslenskur hópur sagður á bak við gríðarstóran gagnaleka í Tyrklandi Bjarki Ármannsson skrifar 5. apríl 2016 00:08 Meðal þeirra sem lekinn virðist ná til er Recep Erdogan, hinn mjög svo umdeildi forseti Tyrklands. Vísir/AFP
Tölvuþrjótar segjast hafa lekið á netið persónuupplýsingum nærri fimmtíu milljóna tyrkneskra ríkisborgara. Í erlendum fjölmiðlum er gagnalekinn sagður gríðarlega stór og tengjast mögulega Íslandi. Í Tyrklandi búa rúmar sjötíu milljónir manna og er því um að ræða rúman meirihluta þjóðarinnar, ef satt reynist. Yfirlýsingar tölvuþrjótanna hafa ekki verið staðfestar, en á vefsíðu þeirra er hægt að sækja gögn sem innihalda meðal annars kennitölur og heimilisföng. Meðal þeirra sem lekinn virðist ná til er Recep Erdogan, hinn mjög svo umdeildi forseti Tyrklands. Á vefsíðunni er farið hörðum orðum um Erdogan og virðist gagnalekinn þannig að einhverju leyti framkvæmdur af pólitískum ástæðum. Að því er fréttaveitan AP greinir frá, virðist vefsíðan sem um ræðir hýst á tölvuþjónum íslenska hópsins Flokinet sem sérhæfir sig í að opinbera leynilegar upplýsingar sem þessar. AP segist í gær hafa sannreynt að upplýsingarnar séu að minnsta kosti að einhverju leyti réttar. Ef fullyrðingar tölvuþrjótanna eru sannar er um einhvern stærsta gagnaleka sögunnar að ræða.
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Sjá meira