Lífið

Þegar Bjarni Ben var grillaður af stúlku í 9. bekk

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stórkostlegt atriði.
Stórkostlegt atriði. vísir
Sjónvarps- og útvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal var á sínum tíma umsjónamaður sjónvarpsþáttanna Tekinn.

Þættirnir gengu út á það að hrekkja vel þekkta Íslendinga en gamalt myndbrot úr þáttunum hefur vakið sérstaka athygli á samfélagsmiðlunum undanfarna daga. Þar má sjá þegar Auðunn tók Bjarna Benediktsson, núverandi fjármálaráðherra og þáverandi þingmann.

Hann mætti þá í heimsókn í Salaskóla og ræddi við krakka í 9. bekk. Eftir stutta kynningu á sjálfum sér var opnað fyrir spurningar úr sal. Þar gekk ein stúlka mjög hart fram og hreinlega grillaði Bjarna Ben.

Atriðið þykir viðeigandi um þessar mundir og má sjá það hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×