Markarfljótsbrú kostar 220 milljónir Svavar Hávarðsson skrifar 9. apríl 2016 07:00 Ný göngubrú yfir Markarfljót – séð úr norðaustri. Mynd/Studio Granda/EFLA verkfræðistofa
Vel sækist að fjármagna göngubrú yfir Markarfljót við Húsadal í Þórsmörk, sem verður 158 metra löng fullbyggð. Brúin gerir eitt af vinsælustu ferðamannasvæðum landsins aðgengilegra en einnig öruggara, segir í frétt Skógræktar ríkisins. Markmiðið með smíði göngubrúar yfir Markarfljót við Húsadal er að auka öryggi og aðgengi að einum af vinsælustu ferðamannastöðum á landinu, segir í fréttinni og jafnframt að með aðkomu frá Emstruleið verður til ný aðkoma að Þórsmörk sem gerir fleirum kleift að njóta útivistar í Þórsmörk. Með göngubrú yfir Markarfljót við Húsadal verður til örugg og fljótleg rýmingar- og flóttaleið ef miklir vatnavextir verða í öðrum ám á svæðinu. Með göngubrúnni opnast einnig nýjar gönguleiðir fyrir lengri og skemmri ferðir um þetta fjölbreytta landsvæði með tengingu við Tindfjallasvæðið sem og inn með Markarfljótsgljúfrum að vestanverðu. Með því móti dreifist vaxandi ferðamennska betur. Fjárveitingar sem tryggðar hafa verið til verkefnisins eru alls 84 milljónir króna. Heildarkostnaður við undirbúning og smíði brúarinnar er áætlaður um 220 milljónir króna. Framkvæmdir hafa því enn ekki verið fjármagnaðar að fullu og þar með er ekki ljóst hvenær smíði brúarinnar hefst.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 9. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Fleiri fréttir Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Sjá meira