Innlent

Fjölmennt á Austurvelli

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Frá mótmælunum.
Frá mótmælunum. Vísir/tinni
Nokkur fjöldi mótmælenda er saman kominn á Austurvelli til þess að krefjast þess að gengið verði til kosninga strax. Hópurinn Jæja stendur fyrir mótmælunum en hann stóð fyrir einum fjölmennustu mótmælum sögunnar á mánudag þegar hátt í 20 þúsund manns komu saman. Að sögn lögreglu er talið að um sex þúsund manns séu á Austurvelli í dag.

Ræðumenn eru Illugi Jökulsson og Sara Þórðardóttir Óskarsson. Þá leiddu saman hesta sína meðlimir út hljómsveitunum Quarashi, Ensími, Dr. Spock og Kiriyama Family sem léku nokkur vel valin lög eftir bandarísku hljómsveitina Rage Against the Machine

„Jæja-hópurinn mun á mótmælunum tilkynna um fyrirhugaðar áframhaldandi mótmælaaðgerðir. Aðgerðirnar munu beinast gegn þrásetu ríkisstjórnar Íslands sem rúin er öllu trausti, uppfyllir ekki kröfur almennings um bætt vinnubrögð á Alþingi og axlar ekki ábyrgð á þeim alvarlega siðferðislega bresti, sem og, trúnaðarbresti sem þessi ríkisstjórn hefur valdið þjóðinni,“segir á Facebook-síðu mótmælanna.

Uppfært klukkan 17:40: 

Ranglega var sagt frá því í fréttinni að hljómsveitirnar Quarashi, Ensími og Dr. Spock hefðu komið fram á mótmælunum. Hið rétta er að meðlimir úr þessum sveitum, ásamt meðlimum úr Kiriyama Family, mynduðu band sem lék lög eftir Rage Against the Machine. Þá var tekið fram að Óttarr Proppé, þingmaður Bjartrar framtíðar, væri í hljómsveitinni Dr. Spock en hann kom ekki fram á þessum tónleikum á mótmælunum. 

Burt með þessa ríkisstjórn!

Posted by Jæja on 9. apríl 2016
vísir/stefán rafn
vísir/egill
vísir/egill
vísir/egill

Þúsundir manna mættu á Austurvöll í dag til að mótmæla ríkisstjórninni. Þekktir tónlistarmenn komu fram. Nánar um þetta í fréttum Stöðvar 2.

Posted by Kvöldfréttir Stöðvar 2 on 9. apríl 2016



Fleiri fréttir

Sjá meira


×