Áfall fyrir hægri öfl Guðsteinn Bjarnason skrifar 30. mars 2016 07:00 Hópur fólks beið við byggingu hæstaréttar Bandaríkjanna í Washingtonborg í gær. Nordicphotos/AFP
Hæstiréttur Bandaríkjanna staðfesti í gær úrskurð áfrýjunardómstóls um að félög ríkisstarfsmanna geti áfram innheimt félagsgjöld af ófélagsbundnum starfsmönnum ríkisstofnana. Enginn hafði reiknað með því að launþegahreyfingin myndi vinna þetta mál, en eftir að Antonin Scalia dómari lést í síðasta mánuði hafa dómarar hæstaréttar verið átta talsins. Dómurinn klofnaði í þessu máli. Fjórir dómarar studdu úrskurð áfrýjunardómstóls, sem hafði dæmt verkalýðsfélaginu í vil, en fjórir voru á móti. Þar með stendur úrskurður áfrýjunardómstólsins. Hefðu fimm dómarar verið andvígir, eins og allt stefndi í þangað til Scalia lést, þá hefði verkalýðshreyfingin tapað málinu. Þegar málið var tekið fyrir í hæstarétti í janúar fór ekki á milli mála, að því er fram kemur í frásögn bandarísku fréttastofunnar Associated Press, að Scalia myndi að öllum líkindum greiða atkvæði gegn verkalýðshreyfingunni. Deilan snerist um fyrirkomulag, sem verið hefur við lýði í nærri fjóra áratugi. Verkalýðsfélögum hefur verið heimilt að innheimta félagsgjöld af öllu starfsfólki, hvort sem það hefur gengið í félögin eða ekki. Litið hefur verið svo á að þeir, sem ekki hafa gengið í félögin, njóti engu að síður góðs af kjarasamningum sem félögin gera við launagreiðendur. Þeim beri því að greiða til félaganna sanngjörn félagsgjöld, enda hafi félögin útgjöld af því að standa í samningaviðræðum. Niðurstaðan í hæstarétti í gær þykir mikill ósigur fyrir hægri öfl í Bandaríkjunum sem hafa lengi barist gegn þessu fyrirkomulagi á þeim forsendum að ekkert réttlæti það að félög geti tekið fé af fólki sem ekki er félagsbundið. Togstreita er nú milli forystusveitar Repúblikanaflokksins og Baracks Obama forseta um skipan nýs hæstaréttardómara. Obama hefur tilnefnt Merrick Garland í embættið, en þarf samþykki öldungadeildar Bandaríkjaþings. Repúblikanar vilja hins vegar bíða með að staðfesta tilnefninguna þangað til búið er að kjósa nýjan forseta. Kosningarnar verða í nóvember. Obama gerði sér far um að tilnefna í lausa dómarasætið mann, sem repúblikanar ættu auðvelt með að fallast á, jafnvel þótt hann þætti ekki líklegur til að draga taum hægri manna sérstaklega.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira