Þriggja mánaða aðgerð Europol og Interpol gegn ólöglegum matvælaiðnaði lokið Birgir Olgeirsson skrifar 30. mars 2016 23:49 Á meðal þess sem var gert upptækt í aðgerðunum. Vísir/Europol
Rúmlega tíu þúsund tonn af ólöglegum mat og drykk voru gerð upptæk í einni stærstu aðgerð yfirvalda í þessum flokki á heimsvísu.Fréttastofa breska ríkisútvarpsins BBC segir frá því að lögreglulið í 57 löndum tóku þátt í aðgerðinni sem stóð yfir í þrjá mánuði, samkvæmt upplýsingum frá Europol.Á meðal þess sem var gert upptækt var útþynnt áfengi en magnið sem um ræðir var nóg til að fylla 12 þúsund baðkör að sögn BBC, en í Bretlandi var lagt hald á 10 þúsund lítra. Lögreglan á Ítalíu lagði hald á 85 tonn af ólífum sem búið var að bera á kopar súlfat til að ýkja grænan lit þeirra. Um var að ræða samstarf evrópulögreglunnar Europol og alþjóðlögreglunnar Interpol sem stóð yfir frá nóvember 2015 til febrúar 2016. Europol segir þennan ólöglega iðnað velta milljörðum dollara sem sé kominn til af hækkandi matarverði á heimsvísu. Á meðal þess sem var gert upptækt var:Apakjöt í BelgíuNærri því níu tonn af sykri í Súdan sem hafði verið blandaður saman við áburð. Lögreglan í Frakkland fargaði 11 kílóum af engisprettum og 20 kílóum af lirfum. Í Ástralíu voru 450 kíló af hunangi gerð upptæk sem búið var að þynna út. Lögreglan í Bólivíu fann vöruhús þar sem geymdar voru þúsundir dósir af sardínum og fölsuðum miðum af frægu perúsku vörumerki sem átti að líma á dósirnar. Lögreglan í Ungverjalandi fann rúmlega tvö tonn af andakjöti sem selja átti sem foie gras.Lögreglan í Taílandi gerði upptæk 30 tonn af kjöti sem voru ekki voru talin hæf til manneldis sem selja átti í matvörubúðum. Ásamt því stöðvaði hún glæpahóp sem smyglaði kjöti frá Indlandi til Taílands. Lögreglan í Suður Kóreu handtók mann sem var grunaður um að smygla fæðubótarefni sem hann seldi sem náttúrulyf en innihélt í raun skaðleg efni. Michael Ellis, sem fer fyrir þessum málaflokki hjá Interpol, sagði þessa starfsemi ógna heilsu fólks sem kaupir mat sem getur reynst hættulegur heilsu þess í góðri trú.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira