Serbneski þjóðernissinninn Seselj sýknaður Atli Ísleifsson skrifar 31. mars 2016 10:40 Seselj hefur að undanförnu tekið þátt á kosningafundum þjóðernissinna, en þingkosningar verða haldnar í Serbíu 24. apríl næstkomandi. Vísir/AFP
Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna hefur sýknað serbneska þjóðernissinnann og stjórnmálamanninn Vojislav Seselj af öllum ákæruliðum um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni á tímum stríðsins á Balkanskaga á tíunda áratugnum. Í dómsorðum segir að Seselj beri enga persónulega ábyrgð á glæpunum. Hann neitaði öllum ákæruliðum og sagði eftir að dómurinn lá fyrir að dómurinn hefði ekki getað komist að annarri niðurstöðu. Hinn 61 árs Seselj var meðal annars sakaður um þjóðernishreinsanir, morð, pyndingar, skemmdarverk og rán í baráttu sinni fyrir því að hrekja aðra en Serba frá svæðum innan landa gömlu Júgóslavíu. Var hann sagður hafa notið aðstoðar 30 þúsund sjálfboðahermanna sem drápu og pynduðu óbreytta borgara í Króatíu og Bosníu. Saksóknari hafði farið fram á 28 ára fangelsisdóm, en hann var ákærður árið 2003. Selselj var heimilað að fara til Belgrad árið 2014 eftir að hafa greinst með krabbamein og var hann ekki viðstaddur í réttarsalnum í Haag þegar dómur féll. Í frétt BBC segir að hann hafi jafnframt hafnað boði dómstólsins um að fylgjast með uppsögu í beinni útsendingu frá Serbíu. Seselj hefur að undanförnu tekið þátt á kosningafundum þjóðernissinna þar sem þingkosningar verða haldnar í landinu 24. apríl næstkomandi. Hann kom á fót róttækum þjóðernisflokki árið 1990 og var kjörinn á þing ári síðar. Hann varð aðstoðarforsætisráðherra árið 1998.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Fleiri fréttir Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Sjá meira