Stórhætta þegar krani fór upp í háspennulínu Sveinn Arnarsson skrifar 22. mars 2016 07:00 Flutningabílinn með kranunum sem rakst í raflínu er notaður við smíði fjóss á Kúskerpi. Mynd/Sigurður Ingi Einarsson
Mikil mildi þykir að ekki fór verr þegar krani gámaflutningabíls fór upp í háspennulínu við bæinn Kúskerpi í Skagafirði síðastliðinn laugardag. Eldingu laust niður í jörð undir gámaflutningabílnum að framan með mikilli sprengingu. „Það er ótrúlegt að flutningabílstjórinn skuli vera til frásagnar og hann má prísa sig sælan að línunni sló út,“ segir Einar Halldórsson, bóndi á Kúskerpi.Steinar Gunnarsson, varðstjóri lögreglunnar í Skagafirði F38210316 SteinarUnnið er að því á Kúskerpi, sem er kúabú í Akrahreppi í Skagafirði, að reisa nýtt fjós á bænum. Síðastliðinn laugardag kom flutningabifreið með gám á heimreiðina. Krani bifreiðarinnar fór upp í Rángárvallalínu 1, sem er byggðalínan sem tengir Eyjafjörð við Blönduvirkjun. Byggðalínan flytur um 100 MW og er allt að 130.000 volta spenna á línunni. Þegar kraninn snerti línuna laust eldingu í jörð undir flutningabílnum að framanverðu og við það varð hávær sprenging. Rangárvallalínu sló út um leið enda hefði illa getað farið ef það hefði ekki gerst. „Það voru menn að störfum í nálægð við atvikið að reisa fjósið. Það þykir mildi að ekki fór illa. Ef línunni hefði ekki slegið út hefði flutningabílstjórinn ekkert verið til frásagnar. Ljósbogi myndaðist undir bílnum með miklum hvelli,“ segir Einar bóndi á Kúskerpi. Samkvæmt upplýsingum frá Landsneti var byggðalínan úti í um 90 mínútur. Málið er talið alvarlegt þar sem um byggðalínu er að ræða. Að þeirra mati skapaðist stórhætta á svæðinu. Lögregla var fengin á vettvang auk þess sem starfsmenn Rarik á Sauðárkróki könnuðu mögulegar skemmdir á línunni. Steinar Gunnarsson, varðstjóri lögreglunnar á Sauðárkróki, segir ótrúlegt að enginn hafi slasast í þessu atviki. „Það er ljóst að menn voru í stórhættu þegar óhappið átti sér stað,“ segir Steinar. Óverulegar skemmdir urðu á línunni og var hún komin í notkun stuttu seinna. „Bílstjórinn stökk út úr bílnum um leið og hann heyrði sprenginguna. Hann náði svo að koma krananum niður með fjarstýringu. Okkur var nokkuð brugðið við þetta,“ segir Einar bóndi.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 22. mars
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Fleiri fréttir Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Sjá meira