Læknar settir í gámaskrifstofur Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 22. mars 2016 07:00 Gámarnir 18 við Landspítalann við Hringbraut voru reistir í lok árs 2014. Jafn mörgum verður komið fyrir í Fossvogi. VÍSIR/GVA
Ríkiskaup hafa fyrir hönd Landspítala óskað eftir tilboðum í kaup og uppsetningu á átján gámum á lóð Landspítala í Fossvogi, eða jafn mörgum gámum og komið var fyrir á lóð spítalans við Hringbraut fyrir rúmu ári. Að sögn Ingólfs Þórissonar, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Landspítala, er stefnt að því að gámarnir í Fossvogi verði teknir í notkun í sumarlok. Þeir verða nýttir undir skrifstofur starfsmanna.„Starfsemin á spítalanum er að vaxa það mikið að við þurfum að rýma. Það á til dæmis að bæta við nýju sneiðmyndatæki. Það er eitt slíkt tæki í Fossvogi en það er of lítið. Bæta þarf við bráðaskurðstofu auk þess sem stækka þarf vöktun við skurðstofur. Það er verið að bæta aðstöðuna inni á spítalanum vegna bráðnauðsynlegrar þjónustu við sjúklingana,“ greinir Ingólfur frá. Átján gámar sem komið var fyrir á lóð Landspítalans við Hringbraut í desember 2014 eru enn í notkun. „Það eru að mestu leyti læknar með skrifstofur í þeim gámum og það má gera ráð fyrir að þannig verði það einnig við spítalann í Fossvogi,“ segir Ingólfur. Að sögn Ingólfs kunna menn vel við gámaskrifstofurnar. „Ég hef að minnsta kosti ekki heyrt neitt annað,“ segir hann. Um 500 fermetra rými er í gámunum við Hringbraut. „Gámarnir í Fossvogi verða af sömu stærð en það getur verið að þeir verði eitthvað öðruvísi. Það fer eftir því hvað kemur út úr útboðinu,” segir Ingólfur. Líklegt er að gámarnir átján í Fossvogi verði í notkun þar til flutt verður í nýjan spítala, að því er Ingólfur segir. Erfiðara sé að segja til um hvenær skrifstofur verði fluttar úr gámunum við Hringbraut.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 22. mars
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira