Innlent

Borgarbúar sýni aðgát vegna viðgerða

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Pjetur
Vel viðrar nú til malbiksviðgerða og verða starfsmenn Fagverks að störfum víða um Reykjavík á næstu dögum. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og draga úr umferðarhraða, eigi þeir leið hjá viðgerðarflokkum.

„Það er þornað á öllum götum og hitinn mjög hagstæður,“ segir Ólafur Á. Axelsson, verkefnisstjóri í malbiksviðgerðum í Reykjavík, í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Fagverk er með tvo vinnuflokka, auk þess eru starfsmenn hverfastöðva Reykjavíkurborgar sinna minni viðgerðum og útköllum í framhaldi af ábendingum vegfarenda.

Á næstu dögum verður unnið á eftirtöldum götum. Listinn er ekki tæmandi og bætt er við hann eftir þörfum:

Borgartún 33 við hringtorg

Engjavegur

Hátún 23 við innkeyrslu að Krónunni

Holtavegur við Sæviðarsund og fleiri staðir

Kringlan 87

Kringlan austan við útkeyrslu

Kringlan í vestur

Laugardalur við KSÍ

Skeiðarvogur við Sæbraut

Skeifan 11 við bílaleigu

Borgarvegur, nokkrir staðir

Fjallkonuvegur (Logafold - Gagnvegur)

Hverafold (Fjallkonuvegur - Fjörgyn)

Langirimi, nokkrir staðir

Skyggnisbraut

Flugvallarvegur við Öskjuhlíð

Hofsvallargata við Melabúðina

Lækjargata

Tryggvagata

Vatnsmýrarvegur

Í fyrsta forgangi voru eftirtaldar götur og er vinnu við þær lokið:Álfabakki við Olís

Jaðarsel, nokkrir staðir

Rangársel

Austurberg (Suðurhólar – Gerðuberg)

Bústaðavegur næst Reykjanesbraut

Bústaðavegur vestan Grensásvegar

Grensásvegur sunnan Miklubrautar

Háaleitisbraut (Miklabraut – Austurver)

Hlemmur

Hverfisgata (Klappastígur – Lækjargata)

Skeiðarvogur (Langholtsvegur – Sæbraut)

Stekkjarbakki rampi

Suðurlandsbraut ( Skeiðarvogur– Álfheimar )

Þessar viðgerðir eru fyrir utan minni skyndiviðgerðir sem hverfastöðvar Reykjavíkurborgar sinnir og holur á stofnbrautum sem Vegagerðin sinnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×