Heimilislaus maður sem benti lögreglu á flóttafanga fær 12,7 milljónir Samúel Karl Ólason skrifar 16. mars 2016 23:12 Matthew Hay-Chapman.
Hinn heimilislausi Matthew Hay-Chapman sem fann strokufanga í janúar mun fá hundrað þúsund dali, eða um 12,7 milljónir króna frá Orange County fyrir að hjálpa lögreglu. Hann bar kennsl á þá Hossein Nayeri og Jonathan Tieu þar sem þeir lágu sofandi í sendiferðabíl. Verðlaunaféð var í heildina 150 þúsund dalir, en aðrir sem einnig höfðu hjálpað lögreglunni fá hluta af því. Skipting verðlaunanna var ákveðin á fundi yfirvalda í Orange County í gær. Hægt er að hlusta á fundinn hér á vefsvæði Orange County.Chapman var á leið á McDonalds þegar hann sá sendiferðabílinn og það fyrsta sem hann sá var að mikill raki var á rúðunum. Sjálfur bjó hann í sendiferðabíl í nokkur ár og því grunaði hann að einhver væri sofandi þarna inni. Þá tók hann eftir því að númeraplöturnar höfðu verið fjarlægðar af bílnum. Þegar einn maður steig út úr bílnum kannaðist hann við manninn eftir að hafa séð mynd af honum í dagblöðum. Strokufangarnir höfðu verið á flótta frá 22. janúar, en það var þann 30. þegar Chapman sá bílinn og benti tveimur lögregluþjónum á hann. Þriðji strokufanginn gaf sig fram degi seinna. Í samtali við ABC7 News í febrúar sagðist Chapman ætla að nota verðlaunaféð til þess að byggja upp líf sitt að nýju og hjálpa börnunum sínum.Chapman ræddi við fjölmiðla í febrúar.
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Sprengja sprakk við hótel Macron í Damaskus Meta hvort hefja eigi réttarhöld yfir meintum morðingja Kirk Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetningar Hamas byrjar að sleppa tökunum á Gasa Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Fimmtán látnir í aurskriðum og flóðum í Kína Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Hvetur leiðtoga Nató til að taka afgerandi ákvarðanir Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Tíu látnir í árásum Rússa á Kænugarð Enn besta lausnin að kaupa Grænland Mætti ekki í útför föður síns Sjá meira