ESB og Tyrkir ná saman um flóttamannamálin Atli Ísleifsson skrifar 18. mars 2016 20:30 Ahmet Davutoglu, forsætisráðherra Tyrklands, Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB og Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar ESB. Vísir/AFP
Aðildarríki Evrópusambandsins og Tyrkland hafa náð saman um hvernig taka skuli á flóttamannavandanum. Samkvæmt samkomulaginu verður flóttamönnum sem koma til aðilarríkja ESB vísað aftur til Tyrklands og í skiptum fá Tyrkir fjárhagslega aðstoð og pólitískar ívilnanir. Samkomulagið felur í sér að frá og með sunnudeginum verða allir flóttamenn sem koma til Grikklands sendir aftur til Tyrklands, verði þeim synjað um hæli. Í skiptum munu aðildarríki ESB taka við sýrlenskum flóttamönnum sem búa í Tyrklandi. Í frétt BBC um málið segir að leiðtogar ESB-ríkja hafi fagnað samkomulaginu en Angela Merkel Þýskalandskanslari varar við að taka þurfi á ýmsum lagalegum úrlausnarefnum.Sögulegur dagur Þrátt fyrir að ESB-ríkin hafi ekki orðið að öllum kröfum Tyrkja þá lýsti Ahmet Davutoglu, forsætisráðherra Tyrklands, deginum sem „sögulegum“. „Í dag gerðu menn sér grein fyrir að Tyrkland og ESB deila sömu örlögum, sömu áskorunum og sömu framtíð.“ Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB, segir að samningurinn sé engan veginn einhver töfralausn og sé einungis einn of fjölmörgum liðum í viðbragðsáætlun sambandsins. Heimildir BBC segja að 72 þúsund sýrlenskir flóttamenn verði fluttir til aðildarríkja ESB.Skammarlegt David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, fagnaði samningnum og sagði hann fela í sér að verulega myndi draga úr fjölda flóttamanna sem halda sjóleiðina til Grikklands. Kate Allen hjá Amnesty International gagnrýndi hins vegar samkomulagið og sagði skammarlegt að fylgjast með þjóðarleiðtogum leitast við að komast hjá lagalegum skuldbindingum sínum. Samningurinn felur meðal annars í sér að tyrkneskir ríkisborgarar þurfi ekki vegabréfsáritun á ferðum sínum um flest aðildarríki ESB og að aukinn kraftur verði settur í aðildarumsókn Tyrklands að ESB.
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Sjá meira