Innlent

Féll niður í fjöru

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Björgunarsveitin Húnar á Hvammstanga var kölluð út vegna manns sem hafði slasast í fjöru við Skarð á Vatnsnesi.
Björgunarsveitin Húnar á Hvammstanga var kölluð út vegna manns sem hafði slasast í fjöru við Skarð á Vatnsnesi. Vísir
Björgunarsveitin Húnar á Hvammstanga var kölluð út fyrir stundu vegna manns sem hafði slasast í fjöru við Skarð á Vatnsnesi.

Var maðurinn á göngu við fjöruna og féll niður um þrjá til fjóra metra. Sjúkrabíll var kallaður á staðinn en þar sem aðstæður voru í erfiðara lagi þurfti aðstoð björgunasrveitar til að koma manninum í sjúkrabíl.

Gekk það greiðlega og er maðurinn nú á leið undir læknishendur. Er hann ekki talinn alvarlega slasaður.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×