Fórnarlamb Johnson: Hann brást mér og notaði mig Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. mars 2016 16:00 Johnson situr út í bíl eftir að hann var sakfelldur í gær. Vísir/Getty
Adam Johnson var í gær sakfelldur af ákæru um kynferðisbrot gegn fimmtán ára stúlku að loknum réttarhöldum sem stóðu yfir í tvær vikur. Johnson hafði játað að hafa dregið stúlkurnar á tálar og kysst hana. En hann neitaði sök í tveimur alvarlegri ákærum um kynferðisbrot gegn barni og var sakfelldur af ákæru um að hafa leitað á stúlkuna. Hann var hins vegar sýknaður um að hafa þegið munnmök frá henni.Sjá einnig: Johnson sekur um kynferðisbrot gegn barni Eftir að niðurstöðurnar voru kynntar las fulltrúi lögreglunnar upp yfirlýsingu frá stúlkunni, sem er sextán ára í dag og hefur notið nafnleyndar sökum aldurs þegar brotin áttu sér stað. „Frá fyrsta degi efaðist ég ávallt um að fólk myndi trúa mér. Ég var að tala við Adam Johnson, sem var óraunverulegt fyrir mig. Hann var uppáhaldsleikmaður minn hjá Sunderland, félag sem ég styð dyggilega. Sem stuðningsmaður Sunderland dáði ég Adam.“ „Hann var hetjan mín. Ég fór á alla heimaleiki sem ég komst á. Ég hlakkaði mikið til þess í hvert sinn.“Sjá einnig: „Tæling í sinni tærustu mynd“ „Þegar Adam sendi mér fyrst skilaboð átti ég bágt með að trúa því. Í fyrstu trúði ég ekki að þetta væri Adam. Hann varð að sanna það fyrir mér.“ „Hann vildi gefa mér treyju sem hann hafði klæðst í leik og ég var auðvitað himinlifandi með það.“Vísir/Getty„Hann spurði mig strax hversu gömul ég væri. Ég sagði strax að ég væri fimmtán ára enda leit ég ekki á það sem vandamál. Ég var bara að fá treyju hjá honum. Í raun sagði ég honum að ég væri nýorðin fimmtán ára.“ „Ég var gagntekinn af öllu saman. Þetta var uppáhaldsleikmaðurinn minn og hann var að senda mér skilaboð.“ „Hann brást mér og notaði mig.“Sjá einnig: 834 textaskilaboð gengu á milli Johnson og stúlkunnar „Þetta hefur verið erfiðasta ár lífs míns og ég hef mátt þola miklar svívirðingar eftir að hann lýsti yfir sakleysi sínu. Ég var sökuð um að vera lygari en í raun þá reyndi ég að halda þessu leyndu því ég vildi ekki að þetta myndi spyrjast út.“ „Það sem gerðist í bílnum hefur umturnað lífi mínu. Ég hef misst allt mitt sjálfstraust. Námið mitt í skólanum hefur liðið fyrir þetta.“Vísir/Getty„Það er fólk þarna úti sem hefur dregið ályktanir um mig og hefur reynst nógu erfitt að eiga við það. Ég hef ekki getað varið mig á opinberum vettvangi.“ „Slúðrið á samfélagsmiðlum og að heyra öll þau hræðilegu uppnefni sem ég hef fengið á mig hefur verið ömurleg lífsreynsla fyrir mig, vini mína og fjölskyldu. Fólk hefur verið að ljúga um mig og það sem ég hef sagt.“Sjá einnig: Johnson bað um nektarmynd af stúlkunni „Þau skilja ekki hvaða áhrif orð þeirra geta haft. Sakfelling hans sýnir að ég var að segja satt. Ég vona að fólk geri sér nú grein fyrir því að hlutirnir eru alltaf eins og þeir sýnast í fyrstu. Það ætti að byggja skoðanir sínar á staðreyndum málsins en ekki sögusögnum.“Vísir/Getty„Síðustu tólf mánuðirnir hafa verið hræðilegir og það hafa komið dagar þar sem ég hef viljað fela mig frá heiminum. Það hafa komið dagar þar sem ég hef reynt að fela fyrir fólki í hversu miklu uppnámi ég er en stundum hefur það reynst ómögulegt og ég hef bara grátið. Ég hef verið brotin.“ „Ég hef upplifað afar dökka og erfiða tíma og ég hélt að réttarhöldin og vitnisburður minn myndi ljúka mínum þætti í þessu máli. En það gerði það ekki. Ég fór aftur á sömu dökku og erfiðu staðina og mér hefur liðið verr en nokkru sinni fyrr. Það var vegna þess að mér fannst að mér væri enn ekki trúað.“Sjá einnig: Johnson: Kom ekki vel fram við kærustu mína og dóttur „Ég vorkenni Stacey og það sem hún hefur mátt þola. Ég vona að Adam geri sér grein fyrir því hversu miklum skaða hann hefur valdið.“ „Ég vil nú byrja að byggja upp líf mitt á nýjan leik. Ég vona að ég geti sagt skilið við þetta og horft til framtíðar.“
Fótbolti Mest lesið Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn Fótbolti „Við erum allavega ekki að fara að sofa“ Fótbolti Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Enski boltinn Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns Fótbolti Real Madrid Evrópumeistari í fimmtánda sinn Fótbolti „Erum á ákveðinni vegferð” Fótbolti Tekur við Napoli og verður sá launahæsti í sögunni Fótbolti „Besta kvöld lífs míns“ Fótbolti „Menn þurfa að gera sér grein fyrir að við erum í botnbaráttu, engu öðru“ Fótbolti Hnéskel Kristófers fór í tvennt Körfubolti Fleiri fréttir „Við erum allavega ekki að fara að sofa“ Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn „Besta kvöld lífs míns“ Real Madrid Evrópumeistari í fimmtánda sinn Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal „Menn þurfa að gera sér grein fyrir að við erum í botnbaráttu, engu öðru“ Tekur við Napoli og verður sá launahæsti í sögunni „Erum á ákveðinni vegferð” Jafntefli í báðum leikjunum í Lengjudeildinni Uppgjörið: KA - ÍA 2-3 | Skagamenn sóttu sigur norður Ronaldinho mætti með stæl á úrslitaleikinn Allt í skrúfunni hjá liði Arnórs Ingva og Gísli lagði upp fyrir Halmstad Pablo fékk útkall frá landsliðsþjálfara El Salvador Kolbeinn fagnaði í Íslendingaslag í Gautaborg Afi skenkti leikmönnum Dortmund bjór KA-menn hafa geta treyst á stigin í Skagaleikjunum síðustu ár Harður stuðingsmaður Real Madrid: „Við elskum þessa keppni“ Fan Zone á hinum mikilvæga leik stelpnanna okkar á þriðjudaginn Ráku Brynjar Björn strax eftir leik Cristiano Ronaldo grét eftir tap í gær Ekkert verður af kaupunum á Everton Óli Jó skellihló eftir pillu Heimis til KSÍ: „Takk fyrir mig“ Sjáðu markaveisluna og magnaða endurkomu Framara á móti FH Freyr þakklátari fyrir ótrúlegustu hluti: „Búið að vera erfitt“ Courtois byrjar úrslitaleikinn „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ „Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið slökktum við á okkur“ Uppgjör: FH - Fram 3-3 | Ótrúleg endurkoma Fram í Krikanum Fyrstu sigrar Aftureldingar og Þróttar Sjá meira