Alvogen kaupir lyfjafyrirtæki á 38,7 milljarða Samúel Karl Ólason skrifar 7. mars 2016 12:45 Róbert Wessman. Vísir/Vilhelm
Alvogen hefur tilkynnt um fyrirhuguð kaup á bandaríska lyfjafyrirtækinu County Line. Samkeppnisyfirvöld í Bandaríkjunum eiga þó eftir að samþykkja kaupin. Kaupverðið er talið vera um 38,7 milljarðar króna. Samkvæmt tilkynningu frá Alvogen er fyrirtækið að styrkja markaðsstöðu sína í Bandaríkjunum og munu kaupin auka vöruframboð fyrirtækisins. „Kaupin á County Line skapa góð tækifæri til áframhaldandi vaxtar Alvogen í Bandaríkjunum sem er stærsti einstaki markaður fyrirtækisins. Árlegar tekjur County Line eru yfir 13 milljarðar króna um hundrað milljónir dala,“ segir í tilkynningunni.County Line sérhæfir sig í sölu lyfja sem eru flókin í þróun og er í dag með tólf lyf á markaði í Bandaríkjunum og níu væntanleg á markað. Reuters fréttaveitan hefur það eftir heimildum að kaupverðið sé um 300 milljónir dala, sem samsvarar um 38,7 milljörðum króna. Þá segir einnig í frétt Reuters að eftir kaupin verði heildartekjur Alvogen um einn milljarður dala, eða um 130 milljarðar króna. Um 2.300 manns vinna hjá fyrirtækinu sem er með starfsemi í 35 löndum. „Alvogen hefur verið í miklum vexti undanfarin ár og staða okkar á stærsta lyfjamarkaði heims hefur nú styrkst enn frekar. Sérhæfing okkar í Bandaríkjunum liggur í því að þróa og markaðssetja lyf sem eru flókin í þróun en þau lyf hafa oft á tíðum minni samkeppni,“segir Róbert Wessman, forstjóri Alvogen. „Á undanförnum árum höfum við byggt upp sterkt orðspor fyrir áreiðanleika og góða þjónustu á mörkuðum okkar og munum halda því áfram. County Line er framsækið fyrirtæki og lyfjasafn þeirra er góð viðbót við vöruframboð okkar sem mun styðja við frekari vöxt Alvogen á komandi árum.“
Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Tilboð á uppþvottavél reyndist of gott til að vera satt Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira