Ráðuneytið telur mjólkurgeirann í samræmi við EES samning Ingvar Haraldsson skrifar 8. mars 2016 07:00 Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda
Atvinnuvegaráðuneytið telur að íslenskur mjólkuriðnaður falli innan samkeppnislaga EES-samningsins. Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), sem sent var í byrjun mánaðarins. ESA vildi fá skýringar á ákvæðum búvörulaganna sem veita mjólkuriðnaði undanþágur frá samkeppnislögum. Gjermund Mathiesen, yfirmaður samkeppnismála hjá ESA, sagði við Fréttablaðið í febrúar að verði niðurstaða athugana ESA sú að undanþága búvörulaga standist ekki samkeppnisreglur EES-samningsins geti Samkeppniseftirlitið og ESA beitt sér á mjólkurmarkaði, t.d. með sektum, gerist félög á þeim markaði brotleg við samkeppnislög. Þá sé einnig hugsanlegt að farið verði fram á að íslenskum búvörulögum verði breytt. Vörurnar sem um ræðir eru að sögn Mathiesen í meginatriðum rjómi, jógúrt og gerjaðar mjólkurafurðir. Ráðuneytið telur vörurnar sem um ræðir vera framleiddar við eðlilegar markaðsaðstæður og í samræmi við samkeppnisreglur EES-samningsins. Áhöld eru um hvort skyr flokkist sem gerjuð mjólkurafurð. ESA spurði ráðuneytið sérstaklega út í flokkun sína á skyri. Ráðuneytið segist flokka ferskan ost í samræmdri vörulýsingar- og vörunúmeraskrá. Miðað við þá skilgreiningu fellur varan ekki undir samkeppnisákvæði EES-samningsins sem gerjuð mjólkurafurð. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, telur flokkun ráðuneytisins koma spánskt fyrir sjónir þar sem skyr sé ekki talið upp með öðrum ostum í ákvörðun verðlagsnefndar búvara. Þá skorar Ólafur á Alþingi að bíða með að samþykkja nýjan búvörusamning þar til athugun ESA lýkur til að komast hjá hugsanlegri skaðabótaskyldu ríkisins vegna málsins.
Tengdar fréttir Eftirlitsstofnun EFTA skoðar íslenska mjólkurgeirann Stærri hluti mjólkuriðnaðarins gæti verið á leið undir samkeppnislög. 19. febrúar 2016 09:30 Mest lesið Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira
Eftirlitsstofnun EFTA skoðar íslenska mjólkurgeirann Stærri hluti mjólkuriðnaðarins gæti verið á leið undir samkeppnislög. 19. febrúar 2016 09:30