Vináttan við Íslendinga skipti mestu Una Sighvatsdóttir skrifar 20. febrúar 2016 19:15
Zahra Mesbah er afgönsk en kom hingað sem flóttamaður frá Íran árið 2012. Hún flutti erindi í dag á málþingi Siðmenntar þar sem fjallað var um hvað gera mætti betur fyrir flóttamenn og hælisleitendur. Zahra segir að í upphafi hafi verið afar erfitt að koma til lands þar sem bæði menning og tungumál voru gjörólík því sem hún átti að þekkja. Með Zöhru í för voru systir hennar og móðir, auk tveggja aðra afganskra fjölskylda. Hún segist hafa verið mjög áhyggjufull því þau vissu ekkert um Ísland. Fyrstu vikuna upplifðu þær sig einar í heiminum.Hélt það hefðu verið mistök að koma „Eftir fjóra daga var ég bara farin að gráta mjög mikið, vegna þess að ég helt að þetta væru mistök. Ég skili allt eftir, fjölskyldu mína og vini og landið sem ég fæddist í og ólst upp. Ég hélt að ég hefði misst allt." Hún segir það hafa breytt öllu að fá stuðning og vináttu frá sjálfboðaliðum Rauða krossins. „Það sem hjálpaði okkur mikið var að þau voru aldrei að segja: „Nei þú getur ekki gert þetta, það er svo erfitt fyrir þig“. Þau sögðu alltaf: „Já þú getur, já þú getur, já þér er velkomið að reyna“. Þetta var mjög mikilvægt fyrir mig til að halda áfram hér, og bara finna mig sjálfa," segir Zahra.Hælisleitendur í verri stöðu Stuðningur við kvótaflóttamenn sem hingað koma í boði stjórnvalda er mun betri en við þá sem koma á eigin vegum og fá hæli. Zahra telur að það myndi stuðla að betri aðlögun ef hælisleitendur fái sambærilega félagslega aðstoð. Þeim mæðgum var úthlutað þremur stuðningsfjölskyldum við komuna til Íslands. Hún segir að það myndi skipta miklu fyrir þá sem hér fá hæli að komast í tengsl við þó ekki væri nema eina stuðningsfjölskyldu. „Sem betur fer komumst við beint til Íslands og beint að hjá Rauða krossinum hér og þetta var auðvelt fyrir okkur. En fyrir hælisleitendur sem koma langt að og hafa upplifað morð og dauða á leiðinni. Það er mjög erfitt fyrir þau. Við gætum hjálpað þeim meir ef við setjum okkur í þeirra spor, þá getum við skilið þau betur. Við getum kannski hjálpað þeim betur að vera hér og finna sig sjálf, að eignast lífið sem þau vilja," segir Zahra.Ánægð með tækifærin á Íslandi Sjálf er hún hamingjusöm með þau tækifæri sem henni hefur boðist á Íslandi, en hún stundar nú háskólanám í ensku og íslensku sem öðru máli. „Draumurinn minn var alltaf að vera læknir. Í löndum eins og Afganistan og Íran og í Sýrlandi, fólkið þarf einhverja sem hjálpa þeim. Ég var í tannlæknisfræði síðustu önn en komst ekki inn í klásusinn. Svo ég bara hugsaði að kannski er betra að kunna meiri íslensku og læra betur því þetta var mjög erfitt. Og svo reyna aftur. Ég ætla að reyna aftur og aftur og aftur og aldrei gefast upp. Það er markmiðið."
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Velja Viljandi villt Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Fleiri fréttir Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“