Í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa beitt sambýliskonu sína grófu ofbeldi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 12. febrúar 2016 18:48 Við skýrslutöku hjá lögreglu lýsti konan miklu líkamlegu og andlegu ofbeldi mannsins en hún sagði hann meðal annars hafa slegið sig, sparkað í höfuð hennar, hárreitt hana og kýlt í síðuna á henni af og til síðan í október síðastliðnum. Vísir/Getty
Karlmaður hefur verið úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald en hann er grunaður um að hafa svipt sambýliskonu sína frelsi sínu og beitt hana líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Konan tilkynnti lögreglu um ofbeldið fyrir viku síðan en hún og maðurinn hafa verið í sambúð um nokkurra mánaða skeið. Við skýrslutöku hjá lögreglu lýsti konan miklu líkamlegu og andlegu ofbeldi mannsins en hún sagði hann meðal annars hafa slegið sig, sparkað í höfuð hennar, hárreitt hana og kýlt í síðuna á henni af og til síðan í október síðastliðnum. Þá sagði hún lögreglu að börn sín höfðu oft orðið vitni að ofbeldinu. Síðastliðinn föstudag hafi maðurinn síðan byrjað að hafa í líflátshótunum við konuna auk þess sem hann kýldi og sparkaði í hana. Hún hafi reynt að flýja en hann náð henni og haldið ofbeldinu áfram. Sagði konan lögreglu að sonur hennar hafi orðið vitni að ofbeldinu og hann hafi grátið allan tímann. Maðurinn neitar sök en í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að lögreglan sé með annað mál á hendur manninum til rannsóknar þar sem hann er grunaður að hafa ráðist á konuna í október. Brot mannsins varða allt að 10 ára fangelsi og segir í úrskurðinum að þau séu þess eðlis að rétt sé að hafa manninn í haldi vegna almannahagsmuna. Hann mun því sitja í gæsluvarðhaldi þar til miðvikudaginn 2. mars.
Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira