Alþingi tekur peningamálin á dagskrá Þorbjörn Þórðarson skrifar 17. febrúar 2016 15:53 Frosti Sigurjónsson formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.
Þingmenn úr öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokknum eru flutningsmenn tillögu um skipan nefndar um úttekt á fyrirkomulagi peningamyndunar í landinu. Í meira en hálfa öld hefur íslenska þjóðin glímt við alvarleg peningaleg vandamál, svo sem verðbólgu, rýrnun gjaldmiðilsins, eignabólu og jafnvel bankahrun. Frá því Seðlabanki Íslands var stofnaður árið 1961 hefur gjaldmiðillinn tapað 99,7% af kaupmætti sínum. Síðar í dag verður flutt þingsályktunartillaga á Alþingi um stofnun nefndar þingmanna til að vinna úttekt á fyrirkomulagi peningamyndunar í landinu og gera tillögur að umbótum. Upphafsmaður þingsályktunarinnar er Frosti Sigurjónsson þingmaður Framsóknarflokksins og formaður efnahags- og viðskiptanefndar þingsins. Flutningsmenn eru úr öllum flokkum sem eiga kjörna fulltrúa á Alþingi nema Sjálfstæðisflokknum. Fram kemur í þingsályktunartillögunni að nefndin verði skipuð sex þingmönnum, einum frá hverjum þingflokki. Skrifstofa Alþingis sjái nefndinni fyrir starfsaðstöðu, starfsmanni og nauðsynlegri sérfræðiaðstoð auk þess sem viðeigandi stofnanir hins opinbera verði nefndinni til ráðgjafar. Nefndin á að skila niðurstöðum sínum með skýrslu til Alþingis eigi síðar en tíu mánuðum eftir skipunardag. Frosti var höfundur skýrslu um sama efni í fyrra og ritaði Lord Adair Turner, fyrrverandi stjórnarformaður breska fjármálaeftirlitsins aðfaraorð. Skýrslan, sem unnin var að beiðni forsætisráðherra, fjallaði um að hvaða leyti mætti rekja vandamál í stjórn peningamála hér á landi til þess að bönkum er heimilt að „búa til peninga‟ þega þeir veita lán. Hugmyndir sem þar eru ræddar hafa verið til umfjöllunar hjá Bank of England og hjá Martin Wolf efnahagsritstjóra Financial Times. Skýrslan fékk hins vegar ekki mikla umræðu á Íslandi en aðallega var gagnrýnt að hún væri á ensku en ekki íslensku. Skýrslan hefur vakið athygli erlendis, m.a. Póllandi. Athygli vakti að skýrslan var gefin út af forsætisráðuneytinu en ekki því ráðuneyti sem málaflokkurinn heyrir undir, þ.e. fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Ástæðan er sú að Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra hafði ekki áhuga á málinu, hvorki þá né nú. Frosti fór því með málið og kynnti það fyrir forsætisráðherra sem skipaði nefnd um gerð skýrslunnar undir forystu Frosta.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Sjá meira